157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:50]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég fagna því auðvitað þegar menn sjá að sér og styð það að þessi breyting á erfðafjárskattslögum verði dregin til baka eins og gert er hér. Þarna ætlaði ríkisstjórnin að miða við markaðsverð varðandi t.d. land, jarðir, en ekki fasteignamat sem gæti verið stórkostlegur munur á og hefði komið í veg fyrir tilætlanir margra til að taka við arfi af foreldrum sínum ,bújarðir. Þannig að ég segi bara: Hvaðan kom þetta og af hvaða hvötum var þetta sett fram? Nú er þetta aftur farið upp í fjármálaráðuneyti frá nefndinni og ég, frú forseti, óska þess að þessar hugmyndir verði feðraðar. Hvaðan kom þetta? Hvaðan úr ríkisstjórninni komu þessar hugmyndir?