skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Breytingartillaga þessi snýr að því að gæta meðalhófs þegar fólk sem hlotið hefur dóm og tekið út refsingu sína og ákveðinn árafjöldi hefur liðið öðlist borgaraleg réttindi á ný. Hér er gengið mjög langt vegna þess að þeir sem sækjast eftir því að sitja í stjórn hjá tollfrjálsum verslunum eða verða yfirmenn þar mega það aldrei samkvæmt þessari tillögu. Svo íþyngjandi eru ákvæðin sem við erum að fara að samþykkja hér. Við hljótum að vilja að ungt fólk sem brýtur af sér geti bætt ráð sitt. Það hlýtur að vera vilji hér til að við verðum ekki stimpluð um ókomna tíð út af brotum sem við erum búin að taka út okkar refsingu fyrir. Þess vegna snýr breytingartillagan bara að þeim lið.