skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegi forseti. Ég fagna því að tillaga Miðflokksins um að afnema þessa heimild fyrir ráðherra varðandi verndarráðstafanir náði ekki fram að ganga af því að þessi heimild er fyrst og síðast gerð til þess að verja íslenska hagsmuni. Þetta er tæki inni í lögum til þess að verja íslenska hagsmuni. Við erum með gott dæmi varðandi Bakka, kísilverið þar, sem er til umfjöllunar núna hjá fjármálaráðuneytinu. Við værum þá eitt ríkja sem værum ekki með þessa heimild, þannig að ég segi já við þessu. Ég held að það sé brýnt, ekki síst í þessum hverfula heimi, að við höfum þau tæki sem þarf til að verja íslensk fyrirtæki og íslenska hagsmuni.