skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Þessir bandormar eru stundum svolítið stórir. Við erum komin að kartöflunum. Þetta er held ég bara tillaga sem allir ættu að geta samþykkt vegna þess að það var samkomulag, það voru allir sammála, Félag atvinnurekenda, Bændasamtökin, allir, um að setja inn bráðabirgðaákvæði þess efnis að það þyrfti ekki að borga jafn háa tolla tímabundið á innfluttum kartöflum. Þetta var algerlega tímabundið og það voru allir sammála um það. 7. töluliður snýr því bara að þessu atriði sem allir voru sammála um að væri bráðabirgðaákvæði þannig að það er alger óþarfi að framlengja þetta ákvæði, vegna þess að það var bara sett hér inn þegar það var skortur á kartöflum. Nú er enginn skortur á kartöflum og því er óþarfi að framlengja þetta.