157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[14:04]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Fram til ársins 2022 ríkti ákveðin upplausn í akkúrat þessum málum, tollamálum með kartöflur, og það var verið að fara á beitingar ár frá ári allt eftir því hvernig vindar blésu í kartöfluuppskerunni hér heima. Þá tóku Bændasamtökin, Félag atvinnurekenda og Samtök verslunar og þjónustu að sér að ná samkomulagi um það að það yrði einn mánuður tollfrjáls á ári til þess að tryggja stöðugleika í framboði og það á viðunandi verði fyrir neytendur. Það var vissulega góð uppskera á kartöflum í ár en hún var hins vegar mjög slæm í fyrra og það var ekki hróflað við þessu. Ég held að það sé óráð að breyta þessu, mun ekki greiða atkvæði mitt með þessari breytingartillögu vegna þess að lykilatriðið hér er að ganga ekki lengra en þarf, en ganga þó svo langt að hér geti neytendur búið við tryggt framboð á kartöflum á viðráðanlegu verði.