skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Þetta er vissulega lítið skref við að reyna að jafna flutningskostnað raforku en hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra boðaði frumvarp um fulla jöfnun á flutningskostnaði raforku sem átti að leggja fram í haust en ekki gafst tími til þess. En það var gott að finna andann í öllum þingflokkum í gær, stuðning við það mál, þannig að þegar það verður lagt fram í vor býst ég við góðum stuðningi þingmanna við það því að þetta er algjört jafnréttismál sem hv. þm. Halla Hrund Logadóttir kom inn á, að það sé sama verð fyrir orkuna, sami dreifikostnaður hér í landinu. Þetta er sanngirnismál fyrir landsbyggðina og sanngirnismál fyrir dreifbýli og ég segi já. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )