skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um mál sem skiptir miklu máli, þ.e. jöfnun flutningskostnaðar raforku. Markmiðið er mjög gott. Ég mun styðja þetta markmið og þetta mál hér en verð samt að fá að gera athugasemdir við það að hin samhenta verkstjórn kom með mál þessu tengt inn síðastliðið vor þar sem hv. efnahags- og viðskiptanefnd var með ítrekaðar spurningar um útfærsluna og fékk engin svör. Það voru engar lausnir. Núna er þetta mál að koma inn 11. desember í algerri nauðvörn ríkisstjórnarinnar af því að hún hefur ekki enn þá fundið lausnina. Öflugu, kláru og duglegu verkstjórninni hefur ekki enn þá tekist að finna lausnina til að gera þetta varanlegt og gera þetta á réttan hátt, þannig að ég held að þau ættu að spara stóryrðin áður en þau vita hvort þau nái að komast í land eða ekki.