157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[14:18]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Nú tekur eiginlega steininn úr. Ég horfi hér á þingmenn meirihlutaflokkanna, hv. þm. Víði Reynisson, sem starfaði með Almannavörnum og starfaði með mér í björgunarsveitunum, og hv. þm. Grím Grímsson, sem ég starfaði með í lögreglunni, og þeir ætla að fella þessa tillögu um að veita almannaheillafélögum, björgunarsveitum landsins sem kannski nota mest af þessu, fulla endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu á byggingarstað. Þetta er eitthvað sem við Sjálfstæðismenn komum á hér á síðasta kjörtímabili og þeir ætla að afnema. Ég bara neita að trúa þessu, virðulegur forseti. Þetta hljóta að vera einhver mistök og hvernig sem við vinnum okkur út úr þessu máli þá óska ég eftir því að málið fari til nefndar á milli 2. og 3. umræðu þannig að nefndin geti ígrundað þetta. Ég er tilbúinn til að draga mínar breytingartillögur til baka ef þetta snýst um það að nefndin geri þetta sjálf eða meiri hlutinn, það er bara hjartanlega velkomið. En þessu ætla ég bara ekki að trúa, virðulegur forseti.