157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[14:34]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þingflokkur Framsóknar styður þetta mál heils hugar. Þetta er gríðarlega jákvætt og mikilvægt skref. Það eru fáir sem vilja vera í þeim sporum að missa barnið sitt þannig að þetta er dýrmætur stuðningur og þetta styrkir fæðingarorlofskerfið, sem var nú gott fyrir hér á landi, gerir það enn betra og er mjög jákvætt skref. Ég held að þingheimur sé væntanlega á þeirri leið að við getum alltaf gert betur og þetta er eitt skrefið í þá átt. Við fögnum því og við í Framsókn verðum á grænu.