157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
286. mál
Frú forseti. Ég vil nota hvert tækifæri hér til að árétta hversu stórkostlegt mál þetta er. Ástæðan fyrir mínu já-i við þessu frumvarpi er sú vitneskja, ekki síst byggð á reynslu minni sem sálfræðingur til 30 ára, að við sáran missi tekur oft sorgin alfarið yfir. Svo mikið að einstaklingurinn sem syrgir er oft ófær um að taka einfaldar ákvarðanir og gera áætlanir. Með því að samþykkja þetta mál erum við að gefa syrgjandi fólki svigrúm til að vera í sorginni á sínum forsendum. Ég segi já.