fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Virðulegur forseti. Ég er jákvæð fyrir þessu máli og segi já. Ég reyndar flutti ásamt hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur breytingartillögu í vor sem var samhljóða því máli sem hér er. Þá sagði ég líka já. Þá sagði reyndar stjórnarmeirihlutinn nei. En þetta er gott mál. Við erum að tryggja það að þau sem hafa verið að fæða barn á síðustu mánuðum og fara í fæðingarorlof fái þá tryggingu að þau fái þakið, 900.000 kr., óháð fæðingardegi barns. Það er gott. En hæstv. ríkisstjórn samþykkti hér í gær að taka af samsköttun milli þrepa. Það fólk sem fær 900.000 kr. sem hámark út úr Fæðingarorlofssjóði er ekki lágtekjufólk, það er svona millistéttin. Líklega er ríkisstjórnin búin að taka af þessu fólki það sem það fær með því að fá þetta þak, þannig að það sem er verið að veita fólki í dag með því að tryggja hækkun þaksins var tekið af þeim í gær með því að fella út samsköttun hjóna milli þrepa.