157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[14:41]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Frú forseti. Ég ætla að gera grein fyrir atkvæði mínu. Ég segi já við þessum breytingum enda mjög góðar breytingar á fæðingarorlofslögunum. Það er mikilvægt að taka skref áfram til þess að bæta stöðu foreldra í fæðingarorlofi og jafnframt í sorgarleyfi. Eftir baráttu síðustu ára og jafnvel áratuga, þá komu þessar breytingar til á sínum tíma vegna baráttu verkalýðsfélaga við gerð kjarasamninga og þrýst var á breytingar á fæðingarorlofslögunum, m.a. hámarki og tímalengd. Það er mikilvægt að halda því til haga. Ég fagna því að við séum að stíga þetta skref, að breyta greiðslum og tryggja sömu greiðslur til allra foreldra óháð því hvenær barn fæðist. Ég segi já.