157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fundarstjórn forseta.

[14:48]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Það er dapurlegt að í fyrsta skipti hér í marga daga sem við erum að ná góðri samstöðu um mjög mikilvægt mál fyrir barnafjölskyldur í landinu er stundin nú kannski svolítið lituð af því að hæstv. ráðherra kemur hér upp í fundarstjórn forseta af því að atkvæðagreiðslan fór fram hjá henni. (Gripið fram í.) Ég bið hæstv. forseta að beita sér fyrir því að ítreka það við ráðherra og stjórnarliða að fylgjast með atkvæðagreiðslum. Við fengum nú ágætisfund með forseta fyrr í vikunni þar sem hún brýndi okkur þingflokksformenn einmitt til þess að ræða við okkar fólk, að við séum með augun á boltanum í þessum löngu atkvæðagreiðslum sem geta stundum verið flóknar. Ég veit ekki hvort þingflokksformenn stjórnarflokkanna hafi skilað því til sinna þingmanna en ég geri nú ráð fyrir því og ætla að gefa þeim það. En þetta er ekki gott fordæmi sem ráðherra er að gefa þingmönnum í dag því að ég veit ekki hversu langt þinghaldið verður ef við ætlum í hverri einustu atkvæðagreiðslu að koma upp í fundarstjórn forseta til að gera grein fyrir okkar atkvæði.