157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fundarstjórn forseta.

[14:49]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég fyrir mitt leyti fagna þessu uppistandi hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hér undir þessum lið til þess eins að upplýsa okkur um það að hún er ekki mjög mikið inni í þessu úrræði, þessari heimild sem hún fjallaði um, heimild samskattaðra aðila til að nýta ónýtt þrep á milli skattþrepa. Hún las upp af síma sínum í þeirri viðleitni að koma þeim misskilningi á framfæri að þetta úrræði gagnist einstaklingum, las hér upp tekjur einstaklinga, að þeir myndu þurfa að sjá af einhverjum þúsundköllum. Úrræðið sem um ræðir gagnast hjónum og fjölskyldum. Það er ekki um það að ræða að sú heimild sem hæstv. ríkisstjórn var að fella niður hafi átt að gagnast einstaklingum heldur hjónum og fjölskyldum þeirra. Það er afleitt að hæstv. ráðherrar komi hér upp undir þessum lið (Forseti hringir.) til að halda fram slíkum falsupplýsingum og auki á upplýsingaóreiðuna (Forseti hringir.) sem næg er fyrir í þjóðfélaginu.