157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fundarstjórn forseta.

[14:50]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Ég er algerlega á sömu blaðsíðu og hv. þm. Sigríður Andersen. Þetta var með ólíkindum, að hæstv. ráðherra Inga Sæland kæmi hér upp og talaði um fólk með 1.500.000 kr. þegar þetta snýst um heildartekjur heimilisins. Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra — sem er hins vegar farin úr salnum, hún gerir þetta, er með uppþot og svo koma aðrir hæstv. ráðherrar eða þingmenn meiri hlutans og ýta henni út úr salnum svo hún valdi ekki meiri usla. Það er það sem gerðist hérna áðan. En ég vona, ef hún er hérna frammi, að hún heyri í mér vegna þess að mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Finnst henni 750.000 kr. allt of mikið? Finnst henni að fólk sem er með 750.000 kr. í laun geti líka fengið mikla skattahækkun á sig? Það er það sem hún sagði áðan.