157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[14:56]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur boðað heildarendurskoðun á því fyrirkomulagi sem hefur verið við lýði undanfarin misseri og varðar styrki til kvikmyndagerðar á Íslandi. Ég held að það megi varla nokkurn tíma missa af endurskoðun og hvet hæstv. ráðherra til dáða í þeim efnum. Þangað til slík heildarendurskoðun liggur fyrir mun Miðflokkurinn sitja hjá við afgreiðslu þessa lagafrumvarps sem hér verður afgreitt.