viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Ég segi já við þessu máli en ég vil taka undir m.a. þær raddir sem hafa komið hér upp í þessum þingsal en ekki síður í samtölum mínum og ráðuneytisins við atvinnulífið. Við þurfum að halda vel á málum hvað varðar ETS-kerfið, tryggja það einmitt að íslenskir hagsmunir séu virtir. Það þýðir öflugt samtal við atvinnulífið hér heima. Það er hafið. Við erum búin að skipa starfshóp sem mun síðan fara að klukka þá sem málið varðar hér heima. Það verður haft samráð við utanríkismálanefnd í þessu en fyrstu skrefin verða í raun tekin á næstunni hjá starfshópnum. Við höfum ákveðinn tíma en það er alveg ljóst að við þurfum að tala fyrir okkar hagsmunum skilmerkilega þannig að það verði tekið tillit til sérstöðunnar sem gildir um Ísland.
Hitt er síðan að það skiptir líka máli að vera alveg traustur bandamaður þegar kemur að því að verja EES-samninginn og það er alveg skýrt hjá þessari ríkisstjórn að hún ætlar að verja EES-samninginn með ráðum og dáð. Það gerum við með því að tala fyrir íslenskum hagsmunum og vera þátttakendur í innri markaðnum. Það fylgir því líka að við þurfum að innleiða ákveðnar gerðir o.s.frv. en við munum alltaf tala skýrt fyrir íslenskum hagsmunum þegar kemur að þeim innan Evrópu sem utan.