157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

atkvæðaskýring þingmanns og makríldeila.

[15:02]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegi forseti. Við atkvæðaskýringu hér fyrr í dag við bandorminn svokallaða hjó ég eftir, í atkvæðaskýringu hv. þm. Jóns Gnarrs, nokkru sem ég hafði ekki tök á að svara af því að þingsköpin leyfa það ekki. Hann bar það upp á nafngreindan fyrrverandi stjórnmálamann, Geir H. Haarde, og Sjálfstæðisflokkinn að hafa komið á erfðafjárskatti. Af því að ég hafði ekki tök á því sjálf vegna fundarskapa að koma hér upp og sá að vinir mínir í Sjálfstæðisflokknum báru ekki hönd fyrir höfuð sér vegna þessa, þá finnst mér rétt að það komi fram að erfðafjárskattur á rætur sínar að rekja til nákvæmlega 12. september 1792 með tilskipun sem þá var innleidd hér á landi og gilti þar til 1810 þegar önnur tilskipun tók gildi um þetta atriði og sú tilskipun hélt gildi allt til 1911 þegar lög um erfðafjárskatt voru sett. Þannig að erfðafjárskattur á hér langa sögu og mér þykir svona í ljósi tilurðarinnar að hann sé frekar kominn úr einhverju kratísku mengi í Danmörku fremur en frá Sjálfstæðisflokknum og hvað þá hér á síðustu árum. Ég vildi bara að þetta kæmi fram.

Það er kannski líka rétt undir þessum lið, sem uppfyllir nú þessa fundarstjórn forseta hér, að nefna það að menn fari kannski varlega í að nafngreina fyrrverandi stjórnmálamenn þegar verið er að deila á ýmsar ákvarðanir sem hafa verið teknar hér. En ég tek hins vegar heils hugar undir ummæli (Forseti hringir.) hv. þm. Jóns Gnarrs um að við ættum að sameinast um að leggja alfarið niður erfðafjárskatt.