157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

atkvæðaskýring þingmanns og makríldeila.

[15:04]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég tek undir hvert einasta orð sem hv. þm. Sigríður Andersen sagði hér áðan. En nú vil ég í mestu vinsemd, af því að við erum búin að ræða hér ákveðin mál í dag, biðja forseta að gefa hæstv. ráðherrum ríkisstjórnarinnar tækifæri til að tjá sig um frétt sem hér var að koma á mbl.is um að ESB hótaði aðgerðum gegn Norðmönnum vegna makríldeilu. Þar kemur fram, virðulegur forseti, að norskir fjölmiðlar komust yfir bréf frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins þar sem Norðmönnum er hótað ýmsum aðgerðum vegna þess að þeir séu ekki nægilega þægir þegar kemur að fiskveiðistjórnarmálum. (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Ég tel nú vegna þess sem á undan hefur gengið að það væri ágætt ef forseti myndi gæta jafnræðis hér þegar kemur að fundarstjórn forseta. (Forseti hringir.) Ég er vissulega ekki hæstv. ráðherra en ég er hv. þingmaður. Ég vil biðja (Forseti hringir.) forseta um að finna leið (Forseti hringir.) til þess að þingheimur fái að vita hvort Ísland hafi fengið sambærileg bréf (Forseti hringir.) eða sambærileg skilaboð. Því það skiptir máli (Forseti hringir.) að það sé upplýst.