atkvæðaskýring þingmanns og makríldeila.
Frú forseti. Ég vil hvetja hæstv. forseta til að bregðast við athugasemd hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar hér áðan, því að það sem hv. þingmaður sagði okkur frá og við höfum séð á mbl.is virðist varpa nýju ljósi á þá stöðu sem upp er komin eftir að ríkisstjórnin féllst á kröfur nágrannaríkja í deilum um makríl. Ég tel þess vegna tilefni til þess, frú forseti, að hæstv. forseti stuðli að því að gert verði hlé á fundum dagsins svo atvinnuveganefnd geti fundað. Það hefur verið beðið um fund í atvinnuveganefnd, tilefnið var nægt fyrir en þetta er áminning um að æskilegt sé og raunar mjög mikilvægt að halda þann fund áður en þingið fer í jólaleyfi.