atkvæðaskýring þingmanns og makríldeila.
Virðulegur forseti. Ég hef ítrekað það að ég er reiðubúin til að mæta á fund hjá nefndum þingsins. Það er mikilvægt að hafa það í huga að hér er um að ræða ákall samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi innan Evrópu, systursamtök SFS, og það er nokkuð algengt að þau kalli eftir því að viðskiptaaðgerðum sé beitt. Svipuð yfirlýsing var sett fram þegar Noregur, Bretland og Færeyjar gerðu með sér samkomulag í júní. Þá stigu þau líka svona fram. Svipaða yfirlýsingu sendu þau árið 2021 þegar Noregur og Færeyjar juku einhliða kvóta sinn, fóru líka í þetta. Við munum að sjálfsögðu fylgjast vel með þessu. Við munum vera í samskiptum við SFS og fleiri vegna þessa og vakta þetta en við höfum ekki enn þá fengið nein formleg viðbrögð frá sjávarútvegskommissarnum. Ég hef ekki trú á því að þau muni sérstaklega fara í einhverjar aðgerðir. En við munum að sjálfsögðu vakta þetta, nema það sé náttúrlega brýnt ákall um það — sem við erum að vinna að, þessi lönd, við erum að vinna að heildarsamkomulagi. Við ætlum að ná Grænlandi inn og við ætlum (Forseti hringir.) vonandi að ná Evrópusambandinu inn. Mér þykir vænt um að heyra(Forseti hringir.) ef að stjórnarandstaðan, með Miðflokkinn í broddi fylkingar, (Forseti hringir.) er með ákall um að við köllum ESB strax inn í þetta samkomulag.(Forseti hringir.) Öðruvísi mér áður brá.
(Forseti (EÁs): Ég bið þingmenn um að virða ræðutímann.)