atkvæðaskýring þingmanns og makríldeila.
Virðulegi forseti. Ég vil undirstrika það að þegar þingfundum er lokið er ég meira en reiðubúin til að mæta á fund hv. atvinnuveganefndar og eftir atvikum utanríkismálanefndar ef eftir því er kallað. Það er meira en sjálfsagt mál. Ég undirstrika líka að við höfum ekki fengið formleg viðbrögð frá Evrópusambandinu en ég efa það ekki að þau muni gagnrýna m.a. þann part sem við höfum talað um varðandi veiðiráðgjöfina. Við verðum samt að hafa það í huga að við erum að vinna að því markmiði að eftir ár verði vonandi búið að ná einhverju heildarsamkomulagi og þá verður farið inn í ráðgjöfina. Þetta skref er liður í því að ná skynsamlegri stýringu á makrílnum. Við þurfum að taka minna skref núna en vonandi verður skrefið risastórt að ári þegar við erum búin að ná heildarsamkomulagi í þessu. Með því að vera þátttakendur í þessu eru meiri líkur en minni á að við verðum með skynsama veiðistjórnun á makríl og það þjónar hagsmunum okkar Íslendinga. En eins og ég segi, þegar við erum búin að klára þingfundi er ég meira en tilbúin til að mæta á fund nefndanna.