kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Við erum hér komin aftur að ræða kílómetragjald. Nú sjáum við hvað við vorum að tala um í tíma. Hér liggur fyrir mál sem ráðherra hefur verið ítrekað gerður afturreka með, ítrekað. Það er enginn í atvinnulífinu sem er að fara að bregðast við þeirri lagasetningu áður en hún verður að veruleika. Þetta mál er búið að koma hérna aftur og aftur. Ekkert land í heiminum hefur með viðlíka hætti tekið upp kílómetragjald á alla bíla. Varðandi það sem hv. þm. Pawel Bartoszek sagði um daginn, og ég veit ekki hvort hann var í salnum þegar ég leiðrétti það, að það eru svona þungaskattar, kílómetraskattar sums staðar, þá hefur ekkert land tekið þetta upp með viðlíka hætti.
Staðan er þá þannig núna að ef þetta er samþykkt á morgun þá eru fimm og hálfur dagur þar til þetta tekur gildi og inni í þessum fimm og hálfa virka degi er Þorláksmessa og hálfur gamlársdagur. Það er staðan. Ég spyr því hv. þm. Pawel Bartoszek hvernig hann ætli að réttlæta það að fyrirtæki sérstaklega, af því að það er aðeins annað með einstaklinga, geti verið tilbúin til að fylgja þessum lögum eftir fimm og hálfan virkan dag.