kílómetragjald á ökutæki.
Forseti. Mér fannst ég ekki alveg fá svar við því hvernig hv. þm. Pawel Bartoszek getur réttlætt það, hvernig hann getur talið raunhæft að þessi fyrirtæki, sem augljóslega máttu skilja það þannig að fyrst lögin tóku ekki gildi í október, þyrftu ekki að aðhafast. Nú eru fimm og hálfur virkur dagur í það. Mig langar bara að fá það aðeins betur á hreint frá hv. þingmanni hvort hann raunverulega telji, þó að við séum oft að semja lög hér með of litlum fyrirsjáanleika, að svona stór kerfisbreyting — það sjá það allir að við erum að setja lög sem fólk mun ekki geta framfylgt, það er útilokað. Það er útilokað að 1. janúar 2026 getum við framfylgt þessu. Það er útilokað. Ég bið því hv. þingmenn í meiri hlutanum aðeins að staldra við og hugsa: Er kannski í lagi að leyfa og samþykkja að gildistakan verði örlítið seinna? Frá því að lög eru samþykkt og þar til þau taka gildi verður að vera meiri munur.
Svo langar mig líka að spyrja hv. þingmann varðandi flækjustigið: Áttar hv. framsögumaður málsins sig á því að bílaleigurnar þurfa að eiga við allt annan veruleika að stríða en einstaklingar þegar kemur að greiðslu reikninga vegna kílómetragjalds á rafmagnsbifreiðar? Því hefur verið haldið fram að við séum komin með þetta. Þetta sé einfalt og sama kerfi. Bílaleigur, út af einum bíl, senda kannski fyrir ákveðið tímabil marga, marga reikninga á milli þess sem þær bíða eftir að Skatturinn endurgreiði. Það eru leiðréttingar af því að það eru áætlanir fyrst og svo eru leiðréttingar og þetta er þvílíkt flækjustig fyrir Skattinn. Ég efast um að Skatturinn verði tilbúinn, hann var alla vega ekki tilbúinn á sínum tíma. Hann er kannski búinn að undirbúa sig vegna þess að hann hlustaði á okkur þegar 71. gr. var beitt, þannig að hann vissi að umræðan yrði bara stöðvuð. En ég spyr bara: Áttar hann sig á flækjustiginu og hvernig, eftir fimm og hálfan virkan dag, á þetta að vera raunhæft?