157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:50]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Stefán Vagn Stefánsson) (F):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða kílómetragjaldið, komin í 3. umræðu og við í 1. minni hluta erum að leggja til nokkrar breytingartillögur. Við erum ekki alveg búin að gefa upp vonina um að ná fram einhverjum breytingum á þessu frumvarpi. Ég var nú bara nokkuð bjartsýnn þegar ég labbaði hér inn í salinn en sú bjartsýni dó nú smátt og smátt þegar ég hlustaði á framsögumann málsins fara yfir þær breytingartillögur sem sá sem hér stendur lagði fram. Það kemur svo sem ekki á óvart. Ég og hv. þingmaður höfum átt í ágætissamtali og samstarfi inni í nefndinni og rætt m.a. þær tillögur sem við erum að leggja fram hér og nú, þannig að ég svo sem geri mér grein fyrir því að það er ekkert nýtt undir sólinni í þessu.

En, virðulegi forseti, það eru nokkur atriði í þessu frumvarpi sem eru þannig úr garði gerð að það er ómögulegt að greiða þeim atkvæði. Ég hef sagt það hér og það veit þingheimur sömuleiðis að við í Framsókn gerum okkur fyllilega grein fyrir því að það þarf að breyta um kerfi. Það þarf að aðlaga kerfið að nýjum veruleika varðandi umferð og notkun á vegunum okkar. Þetta kílómetragjald er alveg ein leið í því og við höfum lagt fram slíkt frumvarp. Formaður Framsóknarflokksins, hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson, lagði fram á síðasta kjörtímabili frumvarp sem er svipað þessu en ekki eins, og við höfum verið spurð: Bíddu, af hverju eru Framsóknarmenn á móti frumvarpinu? Bíddu, lögðuð þið þetta ekki fram? Mér finnst alveg ótrúlegt að þurfa að svara þessu aftur og aftur. Það frumvarp sem var lagt fram er ekki eins og það frumvarp sem liggur fyrir núna, það er algjörlega ljóst. Það er búið að breyta útfærslunni á þessu frumvarpi. Þar af leiðandi munum við í Framsókn ekki samþykkja þetta frumvarp. Við teljum, eins og ég segi, að þetta frumvarp til laga um kílómetragjald sé á margan hátt mikilvægt skref í átt að notendamiðaðri gjaldtöku vegna notkunar vegakerfisins en að margvísleg efnisatriði frumvarpsins þarfnist endurskoðunar til að tryggja sanngirni, fyrirsjáanleika og meðalhóf í framkvæmd til að draga úr óæskilegum áhrifum á almenning og atvinnulíf — ég mun koma að því aðeins betur á eftir — sérstaklega á landsbyggðinni, og stuðla að traustri og ábyrgri innleiðingu nýs gjaldakerfis. Við í 1. minni hluta leggjum því fram tillögur til breytinga.

Fyrsta tillagan, virðulegi forseti, snýr að undanþágu ökutækja sem eru 25 ára og eldri. Þar er lögð til breyting á 4. gr. sem miðar að því að ökutæki sem eru 25 ára og eldri verði undanþegin kílómetragjaldi í stað þess að undanþága miðist við fasta dagsetningu, svo sem fyrstu skráningu fyrir árið 1965, eins og mælt er fyrir um í 2. tölulið 4. gr. frumvarpsins. Aldursviðmiðið sem byggist á því að ökutæki séu 25 ára og eldri er m.a. sveigjanlegra gagnvart þróun bílaflotans, raunsærra og auðveldara í framkvæmd fyrir almenning. Slík ökutæki eru almennt notuð afar takmarkað, rétt eins og hv. þm. Pawel Bartoszek kom inn á áðan í sinni ræðu, og ekki hluti af daglegri umferð eða atvinnunotkun, og hafa því óveruleg áhrif á slit vegakerfisins sem er meginforsenda kílómetragjaldsins. Tillagan fellur vel að meginreglu frumvarpsins um notendamiðaða gjaldtöku þar sem gjaldtaka á ekki að ná til ökutækja sem eru lítið notuð eða eingöngu í varðveislu eða tómstundanotkun.

Það er í raun og veru ekki annað hægt, virðulegi forseti, en að segja að meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar og ráðuneytið, vegna þess að þetta stendur nú í frumvarpinu, sé í grunninn sammála þessari nálgun vegna þess að það er undanþága fyrir þessa bíla í frumvarpinu en hún er bara miðuð við árið 1965, þannig að þau rök að bílar sem eru eldri eða framleiddir fyrir 1965 séu þá undanþegnir kílómetragjaldinu byggjast væntanlega á svipuðum rökum og þeim sem við erum að færa hér fram. Eini munurinn er í raun og veru aldurinn. Eini munurinn er aldurinn og mér finnst í raun og veru skjóta svolítið skökku við að við séum með fast ártal inni í þessu frumvarpi. Mér finnst eðlilegra að miða við einhvern tíma sem breytist þá með frumvarpinu, 25 ár hafa verið nefnd og er nefnt í okkar breytingartillögu. Við erum alveg tilbúin að ræða það hvort það megi breyta þessu ártali. Við erum ekkert föst í því en við höldum að það færi miklu betur á því og að frumvarpið myndi eldast betur, ef ég orða það þannig, með þessu inni, þannig að það væru þá 25 ár en ekki fast ártal, 1965.

Síðan erum við hér með gjaldtöku vegna ökutækjaleiga, að hún verði á hvern hafinn dag í stað fastra tímabila. Við höfum sömuleiðis svolítið rætt þetta í nefndinni. Við höfum fengið bílaleigurnar inn til okkar sem hafa þó vissulega fagnað því að þetta fór úr 30 dögum niður í 15 en kallað eftir enn þá meiri sveigjanleika og sagt að þessir 15 dagar muni ekki nýtast þeim nægilega vel til að ná þeim sveigjanleika sem bílaleigurnar eru að kalla eftir. Þar af leiðandi erum við að leggja þetta fram. Við erum að leggja hér fram að í 12. gr. frumvarpsins verði kveðið á um skil ökutækjaleiga á daggjaldi. Í lokamálslið 2. mgr. ákvæðisins í frumvarpinu kom fram að lágmarkstímabil daggjalds vegna hvers ökutækis væri einn almanaksmánuður, þessir 30 dagar sem ég talaði um hér áðan. Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar lagði til breytingu þess efnis að fram kæmi í lokamálslið 2. mgr. 12. gr. að lágmarkstímabil daggjalds yrði 15 dagar, sem ég fagna, en ítreka hins vegar það sem ég sagði áðan að ég held eftir samtöl mín við bílaleigur og eins og hefur komið fram hjá bílaleigum og þeirra forsvarsfólki inni í nefndinni að þá sé þarna ekki nægilega langt gengið. Því segir hér að 1. minni hluti sé á þeirri skoðun að óþarft sé að kveða á um tiltekið lágmarkstímabil og leggur fyrir vikið til að lokamálsliður 2. mgr. 12. gr. falli brott þannig að þetta verði frjálst.

Mig langar líka, virðulegur forseti, að benda á eitt atriði. Mér finnst ég einhvern veginn ekki geta klárað 3. umræðu um kílómetragjald án þess að ræða um það. Ég talaði aðeins um þetta í upphafi, fyrirspurnina sem við fáum oft, bæði Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn, um af hverju við séum ekki fylgjandi þessu frumvarpi og þetta hafi nú verið lagt fram. Þá vil ég bara benda á þá staðreynd, sem er nú öllum ljós, að jú, vissulega kom þetta frumvarp frá ráðuneytinu inn í nefndina á sínum tíma. Það var hins vegar metið þannig í starfsstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar síðasta haust, í aðdraganda kosninga, að það væri ekki með nokkru móti hægt að samþykkja þetta frumvarp. Þá vorum við í nóvember. Nú erum við bara komin í lok desember, virðulegur forseti. Talandi um fyrirsjáanleika. Það var einmitt ein af ástæðunum fyrir því, og ég sé hér hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson sem sat með mér á þessum skrýtnu tímum fyrir rúmu ári. Við munum alveg eftir því hvernig umræðan var. Þetta var ein af ástæðunum fyrir því að þetta frumvarp fór ekki í gegn, að þetta var stoppað af þingmönnum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks vegna þess m.a. að fyrirsjáanleikinn fyrir þessa aðila, bílaleigur og fleiri, var ekki talinn nægjanlegur. Þarna greip þingið inn í og stoppaði þetta mál, stoppaði málið. Mér finnst mjög mikilvægt að halda þessum punkti til haga vegna þess að það er talað hér eins og við höfum fengið þetta mál frá ráðuneytinu og einhvern veginn ekki komið því í gegnum þinglega meðferð en það var stoppað í nefndinni af meiri hlutanum, sem var reyndar minni hluti.

Við erum síðan með þriðju breytingartillöguna sem er fast 70% gjaldhlutfall eftirvagna frá og með 2026. Þetta hef ég rætt mikið um hér og þeir hv. þingmenn og almenningur sem hafa verið að horfa á þessa umræðu þekkja vel. En það er lögð til breyting á gjaldtöku eftirvagna sem nú er ætlað að verði þrepaskipt til ársins 2027 áður en fullri gjaldtöku er náð, sbr. 6. gr. og ákvæði til bráðabirgða VI. Breytingin sem hér er lögð til er að gjaldtaka verði ávallt 70% af gjaldtöku annarra ákvæða. Stigvaxandi hækkun gjaldhlutfalls eftirvagna getur haft óhagstæð áhrif á flutningskostnað, sérstaklega í flutningum til og frá landsbyggðinni. Slíkar kostnaðarhækkanir geta leitt til aukins verðþrýstings á vörur og þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins og haft áhrif á rekstrarskilyrði fyrirtækja margvíslegra atvinnugreina sem reiða sig á langar flutningsleiðir. Með því móti mun og getur samkeppnisstaða fyrirtækja á landsbyggðinni versnað gagnvart þeim fyrirtækjum sem starfa nær markaði höfuðborgarsvæðisins.

Virðulegur forseti. Þetta er mjög mikilvægt og það er mjög mikilvægt að þetta komi enn og aftur fram í umræðunni. Þegar þetta frumvarp var lagt fram síðast var það lagt fram með sambærilegu ákvæði og við erum að horfa á hér. Þetta var ekki hægt að samþykkja. Við landsbyggðarþingmenn sögðum: Nei, við getum ekki samþykkt með nokkru móti frumvarp sem felur í sér að flutningskostnaður á landsbyggðinni muni hækka. Við getum ekki gert það með galopin augun að horfa hér á að leggja á þannig skatta að við séum að hækka vöruverð á landsbyggðinni. Við getum heldur ekki lagt á þannig skatta og lagt til þannig kerfi að það verði dýrara fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni að senda frá sér vörur inn á markaðinn. Þetta þýðir bara í sinni einföldustu mynd, virðulegur forseti, að vöruverð á landsbyggðinni mun hækka og að samkeppnisstaða fyrirtækja á landsbyggðinni verður verri vegna þess að það verður dýrara bæði að ná í aðföng og koma frá sér vörum. Mitt landsbyggðarhjarta getur ekki samþykkt þetta. Þess vegna var farið í þá vinnu á síðasta kjörtímabili að reyna að finna út tölu, prósentutölu, sem myndi netta þessi áhrif út. Það er þessi 70% tala. Hún var komin inn í síðasta frumvarp, virðulegur forseti, og það er það sem við erum að leggja til hér, að hún verði fest í sessi þannig að við tryggjum eins vel og hægt er að þessi áhrif sem ég lýsti áðan muni ekki koma fram gagnvart landsbyggðinni. Þetta mun þýða, ef þessi tillaga verður samþykkt, að ríkissjóður mun fá meiri tekjur í kassann árið 2026, sem mér sýnist nú ekki veita af, og lækkar síðan reyndar örlítið árið þar á eftir og meira árið 2028.

Virðulegur forseti. Þetta er byggðamál og þetta skiptir máli. Þetta er prinsippmál í mínum huga. Ég er svo sem búinn að fara yfir þetta áður en nú er þetta komið hér í tillöguformi fyrir 3. umræðu og ég vona svo innilega að menn sjái ljósið í þessu máli og verði á græna takkanum á morgun þegar við greiðum atkvæði um þetta. Ég veit og ímynda mér að það ættu margir landsbyggðarþingmenn auðveldara með að fara heim um jólin að samþykkja þó ekki væri nema þessa breytingu, og að sjálfsögðu allar bílaleigur, við vitum með þær og höfum heyrt í bílaleigunum. Auðvitað er það sárt fyrir okkur sem búum úti á landi að horfa upp á það að við erum hér að berjast fyrir því að reyna að fá aukna starfsemi heim á okkar svæði, heim í okkar bæjarfélög, sveitarfélög, og horfa upp á það að þessi breyting sé að leiða til þess að bílaleigurnar séu að loka afgreiðslustöðum sínum á landsbyggðinni eins og ég veit að er t.d. raunin á Sauðárkróki og hef heyrt að það sama sé uppi á teningnum á Ísafirði. Öll þjónustuskerðing skerðir lífsgæði. Það er bara staðreyndin þannig að þetta er vont og að þetta sé afleiðingin af því sem við erum að gera hér ætti kannski að vekja fulltrúa meiri hlutans aðeins til umhugsunar um það hvað við erum að gera. Aftur segi ég að ég skil kerfisbreytinguna en hún má ekki vera þannig að hún komi og nánast leggi heilu og hálfu atvinnugreinarnar í rúst. Ég ætla ekki að fara að tala hér um áhrif kílómetragjaldsins á ferðaþjónustu aðra, dreifingu ferðamanna og hvað það þýðir fyrir landsbyggðina. Ég er búinn að gera það oft í ræðum og sé ekki þörf á að ítreka það. En það sem ég er að benda á er að menn verða og mega ekki gleyma því þegar við erum hér að ræða um frumvörp og erum í lagasetningu að horfa á þau með landsbyggðargleraugum. Mér finnst, því miður, virðulegur forseti, við aðeins vera að horfa skakkt á þetta frumvarp út frá þeim sjónarmiðum, verulega reyndar, verulega.

Svo langar mig í lokin að ræða aðeins um breytingartillögu frá Vilhjálmi Árnasyni þar sem lagt er til að fjárhæð gjalds á hvern ekinn kílómetra vegna aksturs bifreiðar í eigu ökutækjaleigu skuli vera 75% af fjárhæð heildarkílómetragjalds tiltekinnar bifreiðar árið 2026 og 85% af fjárhæð heildarkílómetragjalds tiltekinnar bifreiðar árið 2027. Ég mun styðja þá tillögu. Ég geri ráð fyrir því að við í Framsókn munum öll styðja þá tillögu vegna þess að hún talar nákvæmlega inn í þær áhyggjur, virðulegur forseti, sem við höfum haft af þessu frumvarpi gagnvart ökutækjaleigum, bílaleigunum, og ég og fleiri hv. þingmenn Framsóknarflokksins höfum bent á í þessari umræðu. Þar er verið að tala um tröppun. Við sjáum að í frumvarpinu er tröppun á nokkrum stöðum þannig að fordæmið er til staðar. En ég óttast því miður, virðulegi forseti, svo ég ljúki nú máli mínu hér, að það sem standi meiri hlutanum í raun og veru fyrir þrifum í þessu máli, að gera ekki breytingar og koma ekki betur til móts við þau fjölmörgu sjónarmið sem hafa komið hér fram, sérstaklega varðandi ökutækjaleigurnar, bílaleigurnar, sé einfaldlega það að aurarnir og krónurnar í kassanum eru búnar. Svigrúmið er því miður ekkert og ég get ekki ímyndað mér annað en að þingmenn í meiri hluta hv. efnahags- og viðskiptanefndar hefðu verið boðnir og búnir til að reyna að gera þetta frumvarp betra og ná betri sátt meðal þingheims um það ef þau hefðu haft meira fjármagn milli handanna til að spila úr. En þegar staðan er orðin þannig, virðulegur forseti, að stöðugleikareglan hangir á 15 millj. kr. í fjárlögum upp á 1.600 milljarða, þá er ljóst að hreyfigeta einstakra þingmanna eða þingnefnda er verulega takmörkuð.