157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:11]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans ágætu ræðu. Það er rétt að það er tröppun í frumvarpinu á nokkrum stöðum þannig að það er ekkert vandamál við fordæmið sem slíkt. Það er auðvitað hægt að veita afslátt af sköttum í gegnum eitthvað tímabil. Það er mjög lagalega gerlegt. Vandinn er kannski sá að sú tröppun sem er í frumvarpinu, stærðargráða hennar þegar kemur að kostnaði ríkissjóðs, er dálítið önnur en þegar veita ætti 20% alls bílaflota verulegan afslátt í eitt eða tvö ár. Það eru því töluverð fjárhagsleg áhrif af því. Auk þess er ég ekki endilega viss um að það auki endilega samstöðu með ferðaþjónustunni ef fólk upplifir að hluti bílaflotans þurfi þá ekki að greiða sömu gjöld fyrir notkun vegarins vegna þess að í dag greiða ferðamenn auðvitað bara nákvæmlega sama gjald fyrir að nota vegina og allir aðrir. Þeir eru ekki með sérstakan afslátt af bensíngjöldum eins og þarna yrði þá lagt til.

Ég vil líka nefna svigrúm til að bregðast við ýmsum hugmyndum og breytingum. Við erum kannski meira framar í umræðunni en síðar en engu að síður langar mig að spyrja út í tvær af breytingartillögunum sem hv. þingmaður leggur til. Í fyrsta lagi varðandi bíla, 25 ára og eldri. Ég hef ekki alveg náð á þessum stutta tíma að átta mig á því um hve marga bíla væri að ræða en þær tölur sem ég hef séð frá Bandaríkjunum benda til þess að u.þ.b. 10% bílaflotans sé 25 ára og eldri og bílafloti þeirra er svipaður í aldri og okkar. Það mætti því halda að þetta væri eitthvað svipað hjá okkur, 5–10%. Það er töluvert þannig að ég velti fyrir mér hvort þingmaður væri til viðræðu, ef hann vill hafa árafjölda, um einhvern annan árafjölda.

Varðandi 70% þá heyrði ég formann Framsóknarflokksins nefna að hafa þetta frekar 70% til ákveðins tíma en þingmaðurinn nefnir 70% varanlega þannig að ég er að reyna að átta mig á hver stefna Framsóknarflokksins er í þessu.