157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:13]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni og framsögumanni þessa kílómetragjalds, Pawel Bartoszek, kærlega fyrir andsvarið og þakka honum sömuleiðis fyrir samvinnu í nefndinni sem ég gleymdi að minnast á í minni fyrri ræðu að hefur verið afskaplega góð. Ég fagna því að ég og hv. þingmaður erum komnir í þá stöðu að vera farnir að ræða um möguleg ártöl. Þá erum við komnir í áttina. Svo gleður mig enn þá meira að þingmaðurinn sé farinn að hafa mikinn áhuga á stefnu Framsóknarflokksins sem ég hvet fleiri þingmenn til að kynna sér í þaula.

En það er alveg rétt og það á að vera alveg skýrt, virðulegur forseti, hér í þessari breytingartillögu hver stefna okkar er í þessu máli. Stefna okkar er sú að hafa þetta 70% fast. Það er tillagan. Það kemur bara til af því, virðulegur forseti, eins og ég hef margsinnis farið yfir, að mér er bara lífsins ómögulegt að fara að búa til kerfi sem hefur íþyngjandi áhrif á fyrirtæki á landsbyggðinni og fólk sem býr á landsbyggðinni umfram aðra. Það er bara því miður að birtast hér í þessu frumvarpi. Þar af leiðandi á ég mjög erfitt með og finnst ómögulegt að samþykkja frumvarpið eins og það er fram komið. Ég vona að þetta svari spurningum hv. þingmanns, þessum tveimur. Að sjálfsögðu, eins og ég sagði áðan, erum við tilbúin að ræða einhver ártöl í þessu. Ég er ekki með tölurnar um hvort þetta séu 5% eða 10%. Í mínum huga snýst þetta um að við erum að tala um fornbíla. Við erum ekki að tala um gamla bíla sem fólk er að nota í umferðinni, heldur fornbíla. Ef hv. þingmaður er tilbúinn að ræða hér einhver önnur ártöl til að koma því í gegn þá er ég meira en boðinn og búinn til þess.