157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:16]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þingmaðurinn þarf auðvitað ekkert, sem hann gerði ekki, að skammast sín fyrir Framsóknarflokkinn og hans stefnu. Það er bara flokkur sem er hægt að bera virðingu fyrir á margan hátt og hefur gert íslensku samfélagi margt gott á margan hátt.

Ég held í rauninni að þingmaðurinn hafi svarað spurningum mínum með nokkuð tæmandi hætti, þannig að ég er ekki með mjög margar viðbótarspurningar. Eins og ég skildi formann Framsóknarflokksins var hann mikið að tala um það að mögulega hefði þessi eftirvagnavæðing stafað svolítið af ákveðnum hvötum og að hann, formaður Framsóknarflokksins, hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson, sæi ekkert endilega fyrir sér að það væri æskilegt að viðhalda því fyrirkomulagi. Með því að setja þessa 70% breytingu í einhvern árafjölda, fimm ár, þá værum við þannig ekki að refsa þeim sem hefðu í dag fjárfest í slíkum tækjum og leyfðum þeim að keyra göturnar og værum ekki endilega að búa til hvata fyrir nýja aðila til að kaupa þannig tæki heldur frekar að ferðast um á flutningabílum sem væru ekki með svo stórar vagnlestir af því að þær væru hættuminni. Ég ætla bara að bjóða þingmanninn að bregðast við því hvort hann sæi einhvern flöt á því að láta t.d. þessa 70% reglu vera til einhvers árafjölda frekar en að láta hana vera varanlega.