157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:17]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir afbragðs síðara andsvar og fyrir góðar hugmyndir og vangaveltur í sínu síðara andsvari. Það er alveg ljóst hvað við erum að leggja fram. Allar hugmyndir og tillögur til að gera þetta frumvarp betra og hagfelldara fyrir fyrirtæki og fólk á landsbyggðinni, að sjálfsögðu munum við í Framsókn fagna því, að sjálfsögðu. En tillagan okkar er alveg skýr og liggur fyrir hvað þetta varðar. Eins og ég segi á það sama við í þessu frumvarpi og öllum öðrum, að ef menn vilja gera vond mál betri og laga hlut landsbyggðarinnar þá fagna ég því alltaf og mun gera það í þessu máli.