kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil þakka þeim ræðumönnum sem hér hafa talað sköruglega. Hv. þm. Jens Garðar Helgason talaði ágætlega um þetta. Ég ætla að bæta aðeins við. Ég er með nýjar upplýsingar en þær eru kannski af sama meiði og áður hafa komið fram. Hér er í salnum hv. framsögumaður málsins, hv. þingmaður Viðreisnar, Pawel Bartoszek. Ég held að honum þyki þetta mál óþægilegt. Hér er um skattahækkun að ræða og alla vega í orði þá talar Viðreisn þannig að þeir séu flokkur sem sé frjálslyndur og hægri sinnaður en það er ekkert í þessu frumvarpi sem sýnir það. Að vera forsvarsmaður fyrir slíkt frumvarp er örugglega að ákveðnu leyti þungt en í samstarfi við aðra flokka verða menn stundum að bera klyfjar sem menn hefðu síður viljað bera.
Ég hafði samband við bílaleigu sem er þokkalega stór á Íslandi og spurði: Hversu margar ferðir er búið að selja fyrir næsta ár, hversu marga leigudaga? Nú er þetta frumvarp ekki orðið að lögum enn þá þannig að það eru fimm dagar sem þessi bílaleiga hefur til að bregðast við. Hér mætir annar hv. þm. Viðreisnar, Grímur Grímsson. Gott að hann er kominn í salinn vegna þess að þar er mikill eðalmaður á ferð og ég trúi því ekki að hann sé þessi skattahækkunarsinni þrátt fyrir að hann greiði hér atkvæði hægri vinstri með skattahækkunum, líklegast gegn betri sannfæringu. En svo ég ítreki það, þá er hann líka í meirihlutasamstarfi með skattaflokkunum tveimur og ég fyrirgef honum sem persónu en ekki sem stjórnmálamanni, svo ég slái nú á létta strengi hér og meina nú ekkert illt með þessu. En þessi bílaleiga er búin að leigja út 85 þús. leigudaga á næsta ári og þetta veldur því að það kemur reikningur í höfuðið á þessari bílaleigu miðað við þessa leigudaga upp á 120 milljónir. Einhvern veginn þarf bílaleigan að afla þeirra tekna, annaðhvort með því að rukka leigjendur eftir á, sem er líklegast ótækt, og þeir munu þá þurfa að taka þetta af ef einhver hagnaður verður eða þá bara að ganga á eigið fé félagsins. Fyrirsjáanleikinn er náttúrlega enginn og það er ekki boðlegt í neinu samfélagi að við séum að setja hér lög sem eiga að taka gildi eftir fimm daga, fyrirsjáanleikinn er enginn. Ég ætla að segja það þessum tveimur gæðamönnum sem eru hér í salnum úr Viðreisn, hv. þingmönnum Pawel Bartoszek og Grími Grímssyni, að það er ósvífið gagnvart ykkur að hinir stjórnarflokkarnir tveir skuli setja ykkur í þá stöðu að þurfa að gera þennan gjörning. Þetta er ekki gott. En þetta fékk ég frá bílaleigu, 85 þús. leigudagar sinnum 1.390 sem er þá einhvers konar meðaltal. Ég er ekki sjálfur með þá tölu 100% á hreinu, viðurkenni það, en þetta er frá þeim sem sér um reksturinn á þessari bílaleigu. Hann bætti við að bara það sem skarast í bókunum, sem á að bóka við afhendingu í desember og fara yfir í janúar, 28. desember til 6. janúar, muni kosta bílaleiguna tæpar 4 millj. kr. Hér erum við að tala um tíu daga, þannig að þetta er það sem Viðreisn og kjósendur Viðreisnar eru að bjóða okkur upp á. Hvers vegna nefni ég Viðreisn? Vegna þess að Viðreisn er flokkur, held ég, sem sér ekki skattahækkanir sem leið út úr vandanum en þarf að bera þær drápsklyfjar sem ég nefni hér í pontu. Ég finn að ákveðnu leyti til með þessum góðu mönnum sem ég kann ákaflega vel við hér í salnum, ákaflega.
Kílómetragjaldið snertir í raun alla þó að ég sé að tala um bílaleigurnar. Það er ekki tilviljun að ég er að tala um bílaleigurnar vegna þess að bílaleigurnar eru ofboðslega stór þáttur af allri ferðaþjónustu í landinu. Hér er ein bílaleiga sem nú þegar er komin með 125 millj. kr. bakreikning sem þarf að greiðast einhvern veginn. Auðvitað má þá segja: Þessar bölvuðu bílaleigur. Þær eru búnar að græða nóg, látum þeim blæða. En það sem þetta mun gera er það að við erum í bullandi samkeppni við önnur ríki um norðurslóðaferðamennsku, bullandi samkeppni. Þetta minnkar samkeppnishæfni landsins hvað ferðamenn varðar, sérstaklega ferðamenn sem eru að fara lengra frá Reykjavík en hefðbundið er, lengra en Borgarnes og lengra en Vík í Mýrdal. Kílómetrarnir telja. Við þekkjum það öll sem erum hér í þessum sal og þeir sem eru að horfa að svona kílómetragjald var einhvern tímann á bílaleigum, í fyrndinni vil ég segja, og þá hugsaði maður sig vandlega um hversu langt maður fór á bílnum. Ekkert endilega rökrétt því að kílómetrinn kostaði kannski ekkert ofsalega mikið en þetta hefur áhrif á hegðun okkar. Það hefur áhrif á hegðun okkar að vera komin með gjald, því lengra sem þú ferð, því lengra er þá til baka og þá tvöfaldast allt í hausnum á þér. Þetta veldur því að það fólk sem er búið að fara í fjárfestingu á litlum húsum einhvers staðar á Austurlandi, Vestfjörðum, norðanverðu Snæfellsnesi eða Norðurlandi, vill draga til sín ferðamenn og fá gjaldeyri inn á svæðið. Það eru allar líkur á því að það muni draga verulega úr komu ferðamanna til þessara smáferðaþjónustubænda. Þetta veit Viðreisn og þess vegna líður henni ekki vel yfir þessu og hvorki þeim né kjósendum þeirra.
Við getum bara skoðað hvernig ferðaþjónustan hefur þróast, á hvaða leið ferðaþjónusta er. Play flugfélagið er náttúrlega fallið, frú forseti. Það er sem sagt 56% samdráttur á milli áranna 2023 og 2024 í ferðaþjónustunni en bílaleigunum hefur líklegast gengið vel. Einhvern veginn er það sú saga sem fer af þeim en við skulum skoða hvaða tölur þar eru á sama tíma. Það er 73% samdráttur hjá bílaleigum, og hvernig er hlutfall þeirra sem nota bílaleigurnar hér á landi? 70% eru erlendir ferðamenn, 70%. Það er ekkert land held ég í heiminum sem er með fleiri ferðamenn sem nýta sér bílaleigurnar. Bílaleigurnar eru, af því að hér eru engar lestir og engar almennilegar samgöngur út á land, lífæð ferðaþjónustunnar. Ef við höggvum á þá æð verður ekkert í framhaldinu. Það verður drep í útlimnum. Það verður drep og þetta er ekki eitthvert hjal hægri manns í pontu. Ég vil, frú forseti, að þjóðarkakan stækki. Hvað meina ég með því? Ég meina með því að fólk keyri lengri vegalengdir, almenningur og fólk á þessum bílaleigubílum, fari lengra en upp í Mosfellsbæ eða á djammið í Reykjavík. Ég vil að gjaldeyririnn dreifist víðar þannig að innviðir landsins nýtist almennilega. Um leið og við gerum það verður til ákveðin verðmætasköpun auðvitað hér í bænum og í nágrenni Reykjavíkur en líka lengra frá bænum. Við getum bara horft á landið. Þetta er eins og að vera með hús sem er stórt og á mörgum hæðum og við ætlum bara að nota eldhúsið og helminginn af stofunni, að labba þar stanslaust um í stað þess að nýta allt húsið og hleypa fólki út um allt. Hleypum súrefni lengra heldur en hér upp í nærsveitir og eitthvað í átt að Vík í Mýrdal.
Þetta eru kannski svartar lýsingar sem ég er að draga hér upp en samt sem áður sjáum við bara hvað gerðist með skattinn á skemmtiferðaskipin. Við það dróst saman. Skemmtiferðaskipin nánast bara hurfu, þau hurfu. Það er sama hætta með ferðamennskuna og þó að ég sé þingmaður Reykvíkinga eins og hv. þm. Pawel Bartoszek er ég nokkuð viss um (PawB: ... er norður ...) Hv. þingmaður er í norður og sjálfur er ég í suður þannig að við erum þarna sitt hvorum megin við landamærin. Það væri kannski ósanngjarnt af mér að fá hv. þingmann hingað upp til að bregðast við þessari sýn sem ég er að teikna upp hér, hvort hún sé bara alröng eða ekki. Af því að ég vil ekki vera einhver svartsýnisspámaður, ég bara hef töluverðar áhyggjur af því, og ég held að þær séu réttmætar, að þetta kílómetragjald muni skapa svo miklu meira en það gefur, svo miklu meira en það gefur. Það þýðir að heildarskattspor minnkar sem þýðir að það verða minni tekjur fyrir ríkið. Við getum síður byggt skóla og síður lagt vegi. Hér er talað um að nota kílómetragjaldið til að leggja vegi. Stækkum kökuna. Látum bóndann sem er með hýsin lengra í burtu borga skatt, tekjuskatt þegar hann þarf að greiða iðnaðarmönnum til að laga klósettin eða vaskana eða jarðvinnslumönnum sem eru að laga lóðirnar. Þeir þurfa líka að borga skatt. Það fer allt í gang. Það kviknar líf í sveitum landsins. Við vitum af fullt af jörðum sem hafa farið í eyði af því að búfjárrækt hefur dregist saman og þjappast á færri hendur. Hér erum við komin með vísi að því að nýta þetta fallega land okkar. Það eru ótal staðir á landinu sem eru ofboðslega fallegir, það þurfa ekki alltaf allir að vera í kringum Gullfoss og Geysi, litlir fallegir dalir, vötn sem má veiða í, strandbæir. Við getum nýtt þetta betur með því að hefta ekki bílaleigurnar með fimm daga fyrirvara í að gera þetta. Það væri mjög heiðarlegt af hæstv. ríkisstjórn að segja kannski, ef það er málið: Við erum bara í úlfakreppu með fjárlögin. Ef þetta er ekki inni í fjárlögunum þá erum við fallin með þau. Það væri heiðarlegt og þá myndi ég sem þingmaður Reykjavíkur suður alla vega hafa meðaumkun með þeim, ef þeir myndu í raun segja að þetta væri ákveðinn fórnarkostnaður, þetta væri fórnarkostnaður og fólk vissi það sem væri að tapa tekjum úti á landi að því væri bara fórnað til þess að fjárlögin hangi inni. Það væri alla vega að mínu mati heiðarlegt og ég held að ég sé að fara með rétt mál.
Hér eru útreikningar en áður en ég fer í útreikningana, af því að ég sé að ég hef ekkert allt of mikinn tíma, þá er kílómetragjaldið út frá mælum í bílum og þeir eru ekki löggiltir. Ég sé það sjálfur. Ég á bíl sem er breyttur og er á 35 tommu dekkjum. Ég sé hraðamælinn og ég er með annan mæli, GPS-mæli sem er miklu nákvæmari, í bílnum. Þeir sýna ekki það sama. Þar getur munað hátt í 10%. Ég þekki það líka bara í eldri bílum sem ég hef átt og látið breyta að dekkjastærðin skiptir máli og þeir sem breyta bílunum ráða ekki alveg við það að uppfæra mælana á réttan hátt og mælarnir eru ekki löggiltir. Í öllum öðrum mælingum eru löggiltir mælar og þess krafist þar sem við erum að taka inn gríðarlegar tekjur á þetta. Þetta eru miklar tekjur þrátt fyrir að þetta skili sér á endanum líklegast ekki í kassann, þá er sérstakt að menn keyri þetta áfram í stað þess að fresta málinu, finna út úr því hvernig menn geta með sanngirni og ákveðnu öryggi treyst mælunum í bílunum. Síðan er ekkert ríki, eins og kom fram hér í máli hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur og fleiri, hv. þm. Þorgríms Sigmundssonar, það er ekkert ríki í heiminum sem er með þetta kerfi nákvæmlega. Það ætti að hringja einhverjum viðvörunarbjöllum, eins og í bankahruninu þar sem við vorum með alla bestu bankamenn í heimi. Þeir fæddust bara allir á Íslandi, einhvern veginn mjög sérstakt að það skyldi gerast þannig að við værum með einhverja 20 menn sem væru afburða en enginn annar. Þetta lyktar aðeins af því. Að við séum með eitthvert kerfi sem enginn annar notar, Ísland best einhvern veginn, að við séum þá að taka svona prufu á ferðaþjónustunni og á að stærri bílar borgi minna. Sparneytnari bílar, jarðefnaeldsneytisbílar, munu ekki vera eins hagkvæmir, munu sem sagt losa mögulega meira af því að menn sjá ekki hagkvæmnina í því að kaupa sér eyðslugrannan smábíl.
Það eru fá mál sem ég sé minna ljós í heldur en þetta mál. Ég segi það bara af einlægni og ég vona að fólk sem er heima átti sig á því og leggi sig fram um að taka eftir umræðunni hér, út á hvað hún gengur. Hún gengur út á það að verja almannahagsmuni gegn sérhagsmunum. — Ég sé að tíminn minn er búinn og ég held þá mögulega áfram með aðra ræðu síðar.