breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Hér er breytingartillaga við málið við 3. umræðu. Þær eru allar mjög tæknilegar. Það er verið að leggja til að 1. gr. falli brott en það er grein sem fjallar um samspil þessa frumvarps sem hér um ræðir og kílómetragjaldsins. Það er bara verið að samræma þarna á milli. Svo, sem er líka tæknilegt mál, gleymdist að vísa í 7. gr. þar sem verið er að gera nýja grein vegna undanþága vegna keppnisbifreiða og keppnisbifhjóla. Það gleymdist að setja tilvísun í keppnisbifhjól þannig að það er verið að laga það hér. Að lokum er hér bráðabirgðaákvæði vegna innheimtu skiptagjalds vegna eignaskipta við erfðir, þannig að það verði greitt í uppboði en ekki eftir að skiptum lýkur. Þetta er bráðabirgðaúrræði. Þetta eru því eingöngu tæknilegar útfærslur sem ég óska eftir að verði teknar til atkvæðagreiðslu hér þegar málið fer í atkvæðagreiðslu.