157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:50]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hér erum við að ræða um enn og aftur, sem við erum búin að ræða núna undanfarin misseri, hækkanir á gjöldum á heimilin og fyrirtækin í landinu, m.a. hækkun á vörugjöldum á ökutæki. Ég hef velt fyrir mér hvort hv. stjórnarþingmenn og hæstv. ráðherrar séu ekki að lesa sömu fjölmiðla og sömu fréttir og við hin þar sem sagt er frá mörg hundruð prósenta aukningu á innflutningi á ökutækjum til landsins, þar sem allir eru að reyna að tryggja sig á gamla verðinu áður en nýja verð vinstri stjórnarinnar tekur við. Í akkúrat þessum fréttum kristallast einmitt vandamál hæstv. ríkisstjórnar af því að hún gerir ráð fyrir því að geta aukið vörugjöld á ökutæki um 7,5 milljarða ofan á kringum 10,5 milljarða sem nú þegar er rukkað fyrir. Með öðrum orðum telur hæstv. ríkisstjórn að hún geti náð um 18 milljörðum í vörugjöldum af ökutækjum. Þarna er vandamálið. Það sem hefur gerst er að bílaleigur þessa lands hafa reynt að tryggja sín innkaup, sem hefðu komið inn á næsta ári, inn á þessu ári. Mörg, mörg þúsund bílar eru hér suður með sjó og í Ölfusi, mörg, mörg þúsund bílar sem bíða afgreiðslu, sem búið er að flytja inn, ekki síst bílaleigubílar, til þess að tryggja það að bílaleigurnar þurfi ekki, ofan á kílómetragjaldið sem almenningur og ferðaþjónustan fá sex daga til að undirbúa sig fyrir, að þá eru þessar tekjur af vörugjöldunum ekki að fara að koma inn. Það er mjög bagalegt fyrir hæstv. fjármálaráðherra að ná ekki inn þessum tekjum af því að stöðugleikareglan svokallaða, þessi nýja regla sem var nú ekki látið lítið með hér á haustdögum að yrði alger bylting í fjárlagagerð, það er nú bara þannig að byltingin étur börnin sín og stöðugleikareglan er strax fallin. Í fyrstu atrennu er stöðugleikareglan fallin. Á fyrri stigum fjárlaganna var svigrúmið í fjárlögunum í kringum 400–500 millj. Svo var það komið niður í 0. Hv. formaður fjárlaganefndar talaði um að vonandi væri það réttum megin við núllið og nú kemur á daginn, sem allir vita og allir sjá nema hv. stjórnarþingmenn og hæstv. ráðherrar, að þessar tekjur eru ekki að fara að koma inn. Það er strax kominn milljarðahalli, bara út af þessum eina lið er kominn milljarðahalli á stöðugleikaregluna.

En hver eru langtímaáhrifin af því að hækka vörugjöld eins og hér um ræðir? Jú, þau heimili, það fólk sem hefur ekki efni á, almenningur, að stökkva til núna rétt fyrir jólin að kaupa sér nýjan fjölskyldubíl mun líklega þurfa að fresta fjárfestingu í nýjum bíl fyrir heimilið. Af hverju? Jú, af því að meðalfjölskyldubíllinn er a.m.k. að hækka um 2 millj. kr. í verði. Þá bætist ofan á allur rekstrarkostnaðurinn með tilheyrandi kílómetragjöldum o.s.frv. Látum það liggja á milli hluta. Hvað þýðir það? Jú, það þýðir að ef heimilin geta ekki með reglubundnum hætti endurnýjað bílinn sinn, ökutækið á heimilinu, þá þýðir það að bílafloti landsmanna eldist. Það er verið að gera almenningi í landinu erfiðara fyrir að kaupa sér nýja og öruggari bíla. Í umræðunni hefur þetta kannski ekki komið nógu oft fram, þetta öryggissjónarmið. Á hverju einasta ári eru bílar alltaf að verða fullkomnari og fullkomnari þegar kemur að alls konar öryggisútbúnaði og öðru og nýrri bílar eru öruggari en eldri.

Bílaleiguflotinn, þó svo að bílaleigur landsins hafi náð að bjarga sér kannski fyrir horn að stórum hluta með innkaupum fyrir næsta ár þá er þetta ekki einskiptisaðgerð. Þetta er aðgerð og þetta eru gjöld sem eru komin til að vera, þannig að þegar bílaleigurnar ætla eftir 12 mánuði að fara að fjárfesta í og endurnýja bíla þá eru þeir búnir að hækka um 69–70%, hækkun á vörugjöldum um 69–70%. Dacia Duster eru að hækka um 1,67 milljónir. Hvað þýðir þetta? Jú, þetta mun auka kostnað bílaleiganna, þetta mun draga úr fjárfestingargetu þeirra og verður til þess að fyrirtækin muni jafnvel draga lappirnar í því að endurnýja bílaleiguflotann. Það kemur fram í umsögnum frá bílaleigunum að nú er bílaleiguflotinn á Íslandi með þeim eldri í Evrópu. Hér er hæstv. ríkisstjórn ekki bara að tryggja það að við stefnum í að verða með elsta bílaleiguflota í Evrópu, heldur er hún líka að tryggja það að við verðum með einna dýrustu bílaleigubílana. Við munum draga úr samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu ásamt því að bjóða ferðamanninum upp á eldri bíla, dýrari en eldri. Þetta er, virðulegur forseti, alveg magnað eftir allar þær umsagnir sem hafa komið inn til hv. efnahags- og viðskiptanefndar, eftir allar þær umsagnir sem hafa komið frá ótal hópum um það hvaða afleiðingar þessar hækkanir allar munu hafa í för með sér fyrir ferðaþjónustuna. Alls kyns hópar í samfélaginu hafa sent inn umsagnir, Bílgreinasambandið, Samtök atvinnulífsins og fleiri, en samt er þetta bara látið eins og vind um eyru þjóta. Það er ekkert hlustað. Manni finnst það mjög sérstakt í ljósi þess að hér var boðuð snemma í haust, ekki bara ný atvinnustefna, sem reyndar held ég að ætli að reyna að helgast af því að forsætisráðherra ætli einhvern veginn að handvelja þær atvinnugreinar sem eiga að fá að þrífast á Íslandi og hverjar ekki. Það minnir á stjórnarfyrirkomulag í austanverðri Evrópu og austar á síðustu öld. En ekki bara það. Hér var líka boðað verðmætasköpunarhaust sem fyrir mér er orð ársins, virðulegur forseti, verðmætasköpunarhaust. Og hvað er nú verðmætasköpunarhaustið? Ja, það er von að margir spyrji sig: Í hverju felst verðmætasköpunin? Þetta er nýyrðasmíðahaust, það er alveg á hreinu. Hér kemur ófjármögnuð samgönguáætlun. Hæstv. ríkisstjórn segir að hún sé fjármögnuð út af því að þau ætli að stofna eitthvert innviðafélag sem enginn veit hvernig lítur út og hvernig á að vera. En hún er samt fjármögnuð sem er náttúrlega bara della. Í rauninni er það meira og minna næsta ríkisstjórn og ríkisstjórnin þar á eftir sem eiga að framkvæma allt það sem núverandi ríkisstjórn ætlar að gera. Þá er talað um að ræsa vélarnar. Við erum öll búin að heyra um verkstjórn, valkyrjur og tiltektir, verðmætasköpunarhaust og svo má lengi telja.

Virðulegur forseti. Þrátt fyrir ýmsar yfirlýsingar hér af hendi margra hv. þingmanna og hæstv. ráðherra um hvers lags efnahagslegt afrek þessi fjárlög eru, hvers lags efnahagslegt afrek það er að leggja þessa skatta og byrðar á almenning og fyrirtæki í landinu, að fólk og fyrirtæki ættu að vera þakklát fyrir að hafa slíka verkstjórn við stýrið, þá er það nú bara þannig að það verður hinn almenni maður, það verða atvinnurekendur í landinu, smáir, meðalstórir og stórir, sem munu finna fyrir því á eigin rekstri og fólk á heimilisbókhaldinu, þessum glæsilegu afrekum þessarar glæsilegu, sjálfkölluðu verkstjórnar. Því þegar upp er staðið er það alveg á hreinu að hér er um fullkomna uppgjöf að ræða fyrir verkefninu, eins og ég hef sagt áður. Þetta er fullkomin uppgjöf gagnvart verkefninu að takast hér á við ríkisfjármálin, að reyna að létta byrðarnar af fólkinu í landinu. En nei, verkefnið er ekki slíkt. Verkefnið er að þyngja byrðarnar, auka skuldsetninguna og blása út báknið. Það er bara þannig, virðulegur forseti. Það verður hver og einn að fljúga eins og hann er fiðraður. En menn uppskera líka eins og þeir sá.