breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Forseti. Í þessari 3. umræðu langar mig að byrja á að fara aðeins yfir hvað gerðist hér í gær og í dag. Það voru samþykktar mjög margar skattahækkanir, alla vega langleiðina að þeim. Því er enn mikilvægara að við stöldrum við og reynum að vinda ofan af einhverjum af þessum skattahækkunum áður en það verður of seint.
Tilgangur og markmið ríma yfirleitt ekki við fyrirséðar afleiðingar frumvarpsins sem hér um ræðir. Til að mynda er hér hækkun á vörugjöldum á bifreiðar, skattahækkun upp á 7,5 milljarða. Tilgangurinn er sagður vera að berjast fyrir umhverfið, að miklu leyti er þetta umhverfismál. Á sama tíma hækka skattarnir mest á bíla sem eru eyðslugrannir. Það er það sem er að gerast. Það er raunveruleikinn. Hækkunin er 1–2 milljónir á venjulegan fjölskyldubíl. Við erum ekki að tala um lúxusbifreiðar. Þegar kemur að dýrari bílum þótti meiri hlutanum ekki nóg að það væru 65% vörugjöld á bifreiðar, þau fóru upp í 70%. Svo finnst fólki mikið að Bandaríkin setji á okkur 10% þegar við setjum 70% vörugjöld á stærri bifreiðar frá Bandaríkjunum.
En það sem er iðulega sagt er að við verðum að ná í þessa peninga, þessar skattahækkanir, vegna þess að ríkisstjórnin hefur ákveðið að hún ætli að eyða svo miklu. Hún ætlar að eyða 143 milljörðum í viðbót við það sem var gert í fyrra. Þetta er útgjaldaaukningin, 143 milljarðar. Þegar tekið er tillit til verðlagsuppfærslna er þetta samt nálægt 100 milljörðum, skattahækkanir einhvers staðar í kringum 30. Maður hefði haldið að það hefði verið nóg fyrir ríkisstjórnina að auka útgjöldin um 70 milljarða og standa við öll kosningaloforðin um að hækka ekki skatta. Maður hefði haldið að það væri alveg yfirdrifið nóg. Nei, þau þurftu að fara lengra og þess vegna erum við að ræða þessar skattahækkanir hér í dag.
Í því samhengi langar mig að minnast á það líka að því er fleygt fram núna korter í jól að við verðum að samþykkja þetta af því að annars brjótum við stöðugleikaregluna. Ríkisstjórnin, fjármálaráðherra kemur hér inn með frumvörp sem eru svo nálægt því að brjóta stöðugleikaregluna að það má ekkert út af bregða. Ég vil bara segja varðandi þessa stöðugleikareglu að hún er handónýt eins og hún er þannig að ég held að við getum bara hætt að tala um hvort stöðugleikareglan sé brotin eða ekki því hún var hugsuð til þess að hemja útgjaldavöxt ríkissjóðs. Hún nær ekki þeim tilgangi, bara alls ekki. Af hverju? Vegna þess að hugmyndin var að útgjöld ríkissjóðs muni ekki aukast um meira en 2%, raunvirði útgjalda. Raunveruleikinn er sá að útgjöld ríkissjóðs eru að aukast um 10%. Samt er fólk hér inni enn þá að tala um að við megum ekki brjóta stöðugleikaregluna. Af hverju er hún að aukast um 10%? Jú, það má segja að af því að þetta er mjög gölluð regla þá séu nýttar glufur sem ríkisstjórnin segist vilja loka. Allar glufur heimsins þegar kemur að stöðugleikareglunni eru nýttar. Hvernig er það gert? Fyrst og fremst með skattahækkunum því að stöðugleikareglan segir að ef skattar eru hækkaðir þá megi taka tillit til þess. Þá má vera með meiri útgjöld af því að það koma meiri skattar á móti, þannig að það er ekkert skrýtið að stöðugleikareglan sé kölluð skattaregla því hún hvetur til skattahækkana.
Þess vegna er þetta mjög slæm regla og þess vegna held ég að við ættum að hætta að tala um hana og endurskoða hana. Ég hef óskað eftir því að hér fari fram umræða við fjármálaráðherra um hvort hann sé til í að endurskoða hana þannig að hún virki sem skyldi. Það verður vonandi orðið við því en úr þessu verður ekki fyrr en eftir áramót. En við getum bara tekið þessa stöðugleikareglu og sett hana til hliðar núna því hún er ónýt. Hún er ónýt eins og hún er núna. 10% útgjaldavöxtur en samt eru ríkisstjórnarflokkarnir eða meiri hluti þingmanna að tala um að við séum innan við 2% og megum ekki fara yfir það. Allt saman blekking, þetta er bara blekking.
Í þessum fyrsta skattormi komu þessi vörugjöld sem ég ræddi ekki inn í frumvarpinu heldur komu inn frá, má segja, minnisblaði frá fjármálaráðuneytinu sem kom til efnahags- og viðskiptanefndar og efnahags- og viðskiptanefnd var falið að útfæra þessa 7,5 milljarða. Þetta kom bara inn á vörugjöldum og hvað gerði meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar? Hann tók minnisblað fjármálaráðuneytisins og lagði þetta til. Hvað gerist? Í meðförum þingsins kemur í ljós ofboðslega mikið af göllum á þessu. Þetta gengur ekki upp, þetta er ofsköttun, það er gengið of langt. Hegðunarmynstur breyttist það mikið að tekjurnar af þessu munu ekki einu sinni skila sér. Það hafa allir séð fréttir þess efnis að bílar séu að koma fyrir áramót. Fólki og fyrirtækjum er ýtt út í fjárfestingar áður en þau í raun og veru ættu eða þyrftu að fara í þær, til að mynda bílaleigum. Þær munu ekki geta farið að fá tekjur af þessum bílum sem þær flytja inn núna fyrr en löngu seinna. Þetta er vanhugsað og meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar sem samþykkti þetta sá gallana og ákvað að gera smá breytingar, aðeins að lækka þarna. En hvað gerist? Þau hækka annars staðar á móti því þau gátu ekki hugsað sér að fara gegn minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins, embættismönnunum í ráðuneytinu, þess efnis að þetta yrðu að vera 7,5 milljarðar. Af hverju ekki bara að skoða þetta heildstætt, skoða raunveruleikann og bara benda ráðuneytunum sínum á að þetta er það sem er skynsamlegt að gera?
Þetta er mál nefndarinnar og hún vill ekki gera það með þessum hætti. Ráðherra verður þá bara að koma með sitt eigið frumvarp sem hann hefði átt að gera frá byrjun því minnisblaðið frá ráðuneytinu kemur 17. október og eftir það kemur annar bandormur. Ráðherra Viðreisnar, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, kom ekki með þetta inn sem frumvarp. Hann lætur nefndina setja 7,5 milljarða skatta á almenning, alla sem eiga bifreiðar. Allir sem eiga bifreiðar munu borga þessi hækkuðu vörugjöld af öllum bílum sem eru fluttir inn. Það er ein skattahækkunin á allan almenning og fyrirtæki sem eru að reka bifreiðar.
En í þessum bandormi sem hér um ræðir er líka skattahækkun, þ.e. samsköttun hjóna milli þrepa verður afnumin. Því hefur verið haldið fram að þetta séu bara tekjuhæstu aðilarnir. Því er talað um að ef við segjum að annar aðilinn sé með 1,5 milljón í tekjur og hinn aðilinn í sambandinu sé með 0, þá eigi það bara — eins og hæstv. ráðherra, Inga Sæland, sagði í dag þá vorkenndi hún ekki slíkum fjölskyldum að borga hærri skatta. Þetta jafngildir því að hvor aðili í sambandinu væri með 750.000 kr. því að samsköttun byggist á því að þetta eru heildartekjur heimilisins. 750.000 kr., er það millistéttin sem má skattpína endalaust? Það virðist vera. 750.000 kr. laun eru talin svo há að ríkisstjórnin er til í að skattpína millitekjuhópinn og það virðast ekki vera nein takmörk fyrir því.
Svo er það í þessu frumvarpi, sem ég leggst mjög gegn, og allur Miðflokkurinn, að verðlagsuppfærsla krónutöluskatta er 3,7%. Þar inni er fullt af gjöldum á bifreiðar sem hækka líka þannig að vörugjöldin leggjast ofan á, það koma kílómetragjöld líka, krónutöluskattarnir og vörugjöldin, allt á bifreiðaeigendur 1. janúar, eftir nokkra daga, fimm og hálfan virkan dag. Þá leggst þetta með mjög miklum þunga á alla bifreiðaeigendur. Krónutöluskattarnir eru víða í kerfinu þannig að þeir eru 3,7% hækkun á allt. Af hverju gengur ríkið ekki á undan með góðu fordæmi til að stuðla að því að hér megi vextir og verðbólga fara niður eins og þau sögðust ætla að gera? En nei, verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5%. Þau fara 1,2% upp fyrir verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þetta er auðvitað, herra forseti, ekki hægt. Skattagleðin virðist engan endi taka.
Þegar kemur að innviðagjaldi á skemmtiferðaskip, sem þau lækkuðu reyndar frá því sem áætlað var að yrði, þá vil ég samt segja að það er ekki nógu langt gengið vegna þess að það eru allir sammála, allir flokkar hér á þingi eru sammála um að það var gengið of langt í skattheimtu á skemmtiferðaskip. Til þess að vinda ofan af þessu hraðar, af því að skemmtiferðaskipin eru ekki að koma í sama mæli, sem hefur áhrif á sjávarbyggðir víða um landið, þá kemur Miðflokkurinn með góða breytingartillögu þess efnis að á næsta ári verði hann ekki borgaður og síðan hækkaður í þrepum. Þannig gera nágrannalönd okkar af því að það er eðlilegt. Skemmtiferðaskipin selja ferðir sínar með mjög miklum fyrirvara, yfirleitt einu, tveimur eða þremur árum áður en fólk fer, þannig að það er sanngjörn krafa að hafa smá fyrirsjáanleika.
Þetta eru helstu skattahækkanirnar í þessu frumvarpi sem ég ætlaði að fara yfir hér. Ég er reyndar búin að gera þessu frumvarpi góð skil en það sem mér finnst leiðinlegt og sorglegt er að alveg sama hvað hefur komið fram í nefndum og umræðu hér í þingsal þá sáum við það hér í dag að meiri hlutinn greiðir alltaf atkvæði eins og ekkert hafi komið fram, greiðir atkvæði með sínum málum alveg sama þótt það sé búið að benda á að þau nái ekki markmiðum sínum, séu vond frumvörp. Allar umsagnir benda á að í raun og veru verði niðurstaðan öfug við tilganginn. Það eru bara greidd atkvæði eftir línu. Ég óttast að það sé afleiðing þess sem gerðist hér í sumar þegar forseti beitti 71. gr. þingskapalaga og stöðvaði umræðu. Þá sjá auðvitað meirihlutaþingmenn að það skiptir ekki máli hvað kemur fram, þeir þurfa ekkert að vera að setja sig svo mikið inn í þetta, þetta er óþægilegt með atkvæðagreiðslurnar, það er óþægilegt að vera að leggja aukinn skatt á björgunarsveitir, óþægilegt meðan á því stendur en umræðan verður hvort eð er stoppuð ef þau tala of mikið. Slík voru áhrifin af þessu hér í sumar. Þetta hefur áhrif á öll mál sem á eftir koma og því miður virðist það hafa áhrif á þessi skattamál, alveg sama, ég ítreka alveg sama, það er búið að benda á hversu galin skattheimta þetta er, sérstaklega á bifreiðaeigendur, þá er haldið áfram eins og þau heyra ekkert, sjá ekkert og það sem verra er, eins og aparnir þrír, tala ekkert, vegna þess að þau treysta sér ekki til að koma og tala fyrir svo vondum málum.
Ég fullyrði það að þó að maður sé í ríkisstjórn og maður sé ekki sammála öllu þá í flestum tilfellum ef maður er meirihlutaþingmaður og hlutir væru hér eðlilegir væri fólk að koma upp og tala fyrir málum, tala fyrir skattahækkunum. Af hverju er annars verið að setja þær á? Af hverju er verið að leggja fram alls konar mál sem meiri hlutinn treystir sér ekki til að tala fyrir? Það eina sem mér dettur í hug er það að öll þessi mál séu mál sem eru meira og minna unnin af embættismönnum og er enginn stoppari núna. Með fullri virðingu fyrir embættismönnum þá eru þeir í sinni vinnu og kannski með eitthvert áhugamál og búnir að reyna að koma því í gegn hjá fyrri ríkisstjórnum en hefur ekki tekist og þau mál sem koma ekki frá þeim en koma raunverulega frá ríkisstjórninni, af því að við erum búin að vera að fá á færibandi frá fyrri ríkisstjórn, þau eru svo meingölluð. Það er búið að vinna þau svo lítið, þau eru svo gölluð. Það er reyndar yfirleitt með þessi skattafrumvörp að það eru ekkert skoðaðar breytingar á hegðun og þess vegna munu þessir skattar ekki skila sér. Það sem mun gerast er að þetta mun hafa neikvæð áhrif um allt land og sérstaklega þar sem síst skyldi. Þess vegna bið ég ykkur einu sinni enn að endurskoða þetta og leggja ekki alla þessa skatta á almenning í landinu.