breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Stjórnarmeirihlutinn hefur verið duglegur við að saka okkur í minni hlutanum um upplýsingaóreiðu. Þetta kemur oftast frá spunameisturum ríkisstjórnarinnar, að það sé upplýsingaóreiða á vegum minni hlutans. Því tel ég mikilvægt að leiðrétta hér nefndarmann í efnahags- og viðskiptanefnd, hv. þm. Pawel Bartoszek, sem var í nauðvörn ríkisstjórnarinnar að reyna að finna einhverjar skattalækkanir í tillögum ríkisstjórnarinnar og reyndi að eigna sér skattalækkanir sem áttu sér stað fyrir ári síðan. Þegar því er haldið fram að tekjuskattur á fyrirtæki eigi að vera að lækka núna um 1%, úr 21% í 20% — það gerðist fyrir ári síðan þannig að hæstv. ríkisstjórn er núna ekki að lækka þennan skatt heldur var hann lækkaður í starfsstjórninni, svo við höfum það á hreinu. Það er þá leiðrétt hér með.
Þetta eru nefnilega ekkert nema skattahækkanir. Mér þykir það ekkert skrýtið að þingmenn stjórnarmeirihlutans sé farið að svíða undan þessum miklu skattahækkunum sem koma svona illa við fólkið í landinu. Vörugjöldin sem við ræðum hér í þessu máli munu t.d. hækka venjulegan fólksbíl eins og Yaris — sem skólakrakkar eru á, sem lágtekjufólk er oft á, og bara allur almenningur keyrir um á Yaris, það er einn vinsælasti bíllinn — um svona 700 þúsund upp undir milljón um áramótin. Það er bara töluverð hækkun. Að þurfa að borga 700.000 kr. meira fyrir bíl, fyrir þann sem er í námi eða á lágum tekjum, getur bara verið mun flóknara heldur en fyrir þann sem er á háum tekjum, sem kaupir sér kannski örlítið dýrari bíl og þarf þá að borga upp undir 1,7 millj. kr. meira fyrir bílinn. Það sem verra er, við fáum engin gögn í hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Talandi um upplýsingaóreiðu þá fáum við engin gögn um það hvernig hæstv. ríkisstjórn tókst að reikna það út að hún fengi 75% meiri tekjur af vörugjöldum af bifreiðum á næsta ári, 2026. Það er áætlað að tekjur af vörugjöldum af bifreiðum séu 10 milljarðar á árinu 2025. Nú á að hækka vörugjöldin töluvert. Þar sem ríkisstjórnin er að reyna að gera hvata til að kaupa fleiri rafmagnsbíla eru vörugjöldin afnumin. Það er verið að afnema vörugjöldin af vinsælustu bílunum en hækka þau á alla aðra almenna bíla. Þannig ætlar ríkisstjórninni að takast að auka skatttekjur af vörugjöldum um 75%. 75% aukning með því að hækka skatta. Ég man ekki eftir að verð á einhverju hafi aukið söluna á einhverju.
Virðulegur forseti. Það væri fróðlegt ef við gætum fengið það minnisblað hér inn um hvernig hægt er að auka söluna á einhverju með því að hækka skattana og auka söluna um 75%, að vísu með því að taka álagninguna af vinsælustu vörunni. Hvernig gengur þetta reikningsdæmi upp? Ég bara næ því ekki. Þar fyrir utan höfum við gögn um að það sé búið að kaupa alla bílana sem hægt er núna fyrir áramót. Ég heyrði af því í morgun að það væri hvert einasta bílaplan í Þorlákshöfn fullt. Þar eru íþróttafélögin og björgunarsveitir komnar í fulla vinnu við að standsetja bílana og koma þeim í skráningu fyrir áramót. Samt ætlar ríkisstjórnin að auka tekjurnar um 75% af vörugjöldum. (Forseti hringir.) Ef það er svona sem efnahagsmálum þessarar þjóðar er stýrt í dag þá erum við á leiðinni út í skurð.