breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Við ræðum hér breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga. Ég er að hugsa um að byrja, herra forseti, á að setja þetta í samhengi við — sem er kannski að verða pínu tugga — loforð ríkisstjórnarinnar, einkum þó og sér í lagi Samfylkingar og Viðreisnar, um að hér yrðu skattar ekki hækkaðir. Það voru upplýsingarnar sem fólkið í landinu tók með sér inn í kjörklefann og skiluðu áðurnefndum flokkum, að ég tel, talsverðu umfram það sem stundum er kallað kjörfylgi, og eðlilega, þetta voru stór og mikil loforð, reyndar ekki alveg í takt við loforð þriðja flokksins sem skipar þessa ríkisstjórn því að þau loforð voru hins vegar öllsömul meira og minna útgjaldaloforð, þannig að vissulega beið talsvert verkefni þegar — ég ætla að leyfa mér að nota það orð því að þær hafa gert það sjálfar, herra forseti — valkyrjurnar tóku til starfa. Þá ætlaði eitt partíið í suður og hin tvö í norður. Niðurstaðan er sú að fara ýmist í vestur eða austur. Það er ekkert, herra forseti, í þessum málum sem við ræðum hér, breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga, sem passar við það sem við sem gengum að kjörborðinu fyrir meira en ári gátum vænst, nema þá kannski í ljósi sögunnar bara.
Stöðugleikareglan, galdraverkfærið, töfrasprotinn, uppfinning hæstv. fjármálaráðherra væntanlega eða í það minnsta ríkisstjórnarinnar saman, sem átti að tryggja það að hér yrði ekki raunvöxtur umfram 2% — og, herra forseti, í einfeldni minni þegar ég fékk fyrstu kynninguna á þessari reglu, þá sitjandi í hv. fjárlaganefnd — þar var ítarlega farið yfir hvers lags undratæki þarna væri á ferðinni til að ná stjórn á vexti á útgjöldum hins opinbera eða á vexti hins opinbera — spurði ég strax einnar spurningar, herra forseti. Það var þessi einfalda og litla spurning: Er þessi stöðugleikaregla ekki líkleg til að ýta undir skattahækkanir? Því eins og hún var kynnt okkur fannst mér það algjörlega blasa við að ríkisstjórn sem treystir sér ekki í niðurskurð, þó að hún hafi fundið upp alls konar flott nöfn sem eiga að tákna einhvers konar tiltekt, eins og þau segja, þá fannst mér algjörlega blasa við að stöðugleikareglan, í höndunum á þeim sem ekki treystir sér í niðurskurð, myndi gera nákvæmlega það sem ég spurði um, myndi hvetja þá sem héldu á sprotanum til að passa sig að vera örugglega undir og örugglega innan reglunnar sem þau sjálf settu á, því það væri auðvitað ekki gott til afspurnar að búa til töfratæki sem kæmi svo í ljós nokkrum vikum seinna í fjárlögum að virkaði ekki og það væru bara tvær leiðir færar. Önnur væri sú að fara í alvöruaðhald, ekki aukningu á útgjöldum um 143 milljarða kr. heldur í alvöruaðhald, jafnvel niðurskurð ef þess hefði þurft. Nei, hin leiðin væri að hækka skatta. Það er reyndar ekki kallað það, því að það passar ekki við fyrirframgefin loforð og þá verður að finna upp eitthvert nýtt nafn til að það gangi betur í kjósendur viðkomandi flokka og Íslendinga almennt að hér sé komin alvöruverkstjórn, eitt orðið enn sem þau fundu upp, sem gæti sett sér alvörumarkmið og þau myndu halda sig innan þeirra markmiða.
Auðvitað var það ekki það sem raungerðist heldur hitt, að til að bókhald ríkisstjórnarinnar sýndi fram á að vöxturinn væri innan við þessi prósent þá var farið í að sækja meiri peninga. Það heitir skattur. Skattar voru hækkaðir. Eitt af því er t.d. til umfjöllunar hér sem eru vörugjöld. Þar átti að sækja 7,5 milljarða, sem mun auðvitað ekki raungerast því að engar af þessum spám gerðu reyndar ráð fyrir mannlegri hegðun, að fólk myndi hreinlega bregðast við eða fyrirtækin en bókhaldslega er hægt að nota svona brellur til að geta sagt að markmiðið hafi náðst og stöðugleikareglan haldi. Reyndar heldur hún ekkert, ég held að það sé nú búið að sýna fram á það í mörgum ræðum að hún er farin ef bókhaldið er skoðað vel og excel-skjalið rýnt.
En það sem er kannski verra er að jafnvel þrátt fyrir þessa leikfimi, herra forseti, þessa bókhaldsleikfimi til að geta sýnt fram á að töfrasprotinn hafi virkað, töfraverkfærið, þá mun þetta ekki heldur raungerast vegna þess sem ég nefndi áðan, vegna mannlegrar hegðunar fólks og fyrirtækja, því það er jú fólk sem stýrir fyrirtækjunum, til að mynda varðandi innflutning á bílum og sölu. Hann fór bara á flug með það sama. Hér koma skip með þúsundir bíla sem á að selja bæði bílaleigum og öðrum fyrirtækjum sem og almenningi í landinu fyrir áramót, bíla sem gert var ráð fyrir að yrðu seldir eftir áramót. Vörugjöldin áttu að koma þá, fjárlögin gera ráð fyrir því, en munu þá ekki koma eftir áramót.
Þessi vörugjöld, herra forseti, eru að fara að bitna á allri flórunni. Það sem kannski hefur ekki fengið nóga athygli að mati þess sem hér stendur varðandi vörugjöldin og áhrif þeirra á hækkun á verði á bílum og vinnuvélum og ýmsu, er að meira að segja sá hópur sem þessi ríkisstjórn sagðist ætla að standa sérstaklega vörð um, þeir efnaminni, námsfólk og aðrir sem eru að kaupa tiltölulega litla bíla, sparneytna bíla, hér hafa verið nefndar undirtegundir eins og Yaris upp í kannski minnstu gerð af jepplingi, þar má nefna mikið seldan jeppling eins og Kia Sportage — slík ökutæki eru að fara að hækka um 1–1,5 milljónir. Hverjir kaupa helst minni ökutækin, ódýru ökutækin? Jú, það eru væntanlega þeir sem hafa minni tekjur eða kjósa einhverra annarra hluta vegna að vera á sparneytnum ökutækjum sem henta til að mynda vel hér í borgarumferðinni. Það er viss kostur hér, herra forseti, að vera ekki á mjög stórum bíl. Miðað við þá stefnu sem hefur verið rekin í skipulagsmálum Reykjavíkurborgar undanfarin ár þá fer nú hlaupahjólið að verða, held ég, eini valkosturinn. Þau hækka reyndar líka, herra forseti.
Það er alveg sama hvar borið er niður, niðurstaðan er alltaf sú sama. Það sem var lofað og það sem verið er að reyna að segja fólki að verið sé að gera birtist bara ekkert í tölunum sem við fáum svo í hendurnar. Þar er þetta hver skattahækkunin á fætur annarri og í þetta skiptið er ekki hægt að nota sama málflutning og var nýttur hér síðastliðið vor og sumar þegar þingið dróst vegna skattahækkana. Þá var svo auðvelt að fela sig á bak við það að það væri verið að ráðast á örfáar ofur ríkar fjölskyldur sem væru að efnast á kostnað landans. Ég veit ekki hvernig á að nota slík rök núna. Þau rök halda ekki gagnvart ungu fólki sem er til að mynda núna verið að taka af heimild til að samskatta sig. Það er verið að segja við þetta unga fólk — sem er líka að reyna að komast inn á húsnæðismarkaðinn, sem hefur verið gerður jafnt og þétt erfiðari fyrir ungt fólk á undanförnum árum: Heyrðu, þið verðið líka að borga milljón í viðbót fyrir Yarisinn. Það er bara það sem verið er að gera.
Ef við hættum að tala eitthvert svona stofnanamál, eins og fulltrúum hæstv. ríkisstjórnar hættir svo til að gera, reyna að fela sig á bak við einhver falleg hugtök, ef við tölum bara venjulega íslensku þá er verið að segja við þetta unga fólk: Ekki aðeins á meðan annað ykkar ætlar að vinna lítið og hitt að reyna að vinna eins mikið og það mögulega getur á meðan þið komist inn á íbúðamarkaðinn, þið fáið ekki lengur að samskatta ykkur heldur ætlum við líka að hækka vörugjöldin þannig að Yarisinn eða smájepplingurinn sem þið ætlið að kaupa hækkar um milljón til eina og hálfa líka. Það ykkar sem hyggst vera á hlaupahjólinu — það hækkar reyndar líka, hlaupahjólið. Það er engin leið út. Það er hvergi nein hurð í þessu merkt „út“. Með leyfi forseta, til að skilja líkingamálið verð ég að fá að henda í eina slettu og ég tek þá bara skammirnar á mig, herra forseti. Það er engin hurð merkt „exit“. Það er engin flóttaleið, herra forseti. Það er búið að stilla upp þannig fjárlögum og þannig bandormum að það er alveg sama hvað fólk gerir, ef það ætlar á annað borð að fjárfesta í einhverju eða nota sína peninga til einhverra vörukaupa eða þjónustukaupa þá mætir það alls staðar sama viðmóti þessarar ríkisstjórnar: Við erum búin að hækka þetta. Eða reyndar erum við ekki búin að hækka þetta, við leiðréttum þetta. Við fylltum í glufurnar. Auðvitað hækkuðum við þetta ekki. Það stóð aldrei til. Við fórum í lítils háttar tiltekt hérna varðandi vörugjöldin, minni háttar þrif. Við erum ekki að hækka skatta, svo það sé alveg á hreinu. Við erum bara að sýna hérna, og ungt fólk verður að taka viljann fyrir verkið í því, meira aðhald á tekjuhliðinni.
Herra forseti. Þessi aðferðafræði er orðin svo ofboðslega þreytt. Hins vegar sýnir hún okkur, og það má kannski segja að það sé eiginlega það jákvæðasta í þessu, hversu ofboðslega gott tungumál við eigum og hvað er mikils virði að verja það, þó að það komi nú ekki umræðunni um þetta mál er varðar breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga neitt við. Þetta sýnir samt fram á hversu frábær íslenskan er því það er alveg sama hvaða skattur er hækkaður, það er hægt að finna nýtt nafn og segja við ungt fólk, og munaði minnstu að það yrði hægt að segja við erfingja látins fólks, það rétt tókst að bjarga því: Við erum alls ekki að hækka skatta, við erum að beita sleggjunni, erum í minni háttar þrifum og tiltekt, örlitlum sprunguviðgerðum, en við erum ekki að hækka skatta. Það er misskilningur. Það er allt á misskilningi byggt. Samt sýna niðurstöðurnar einhverra hluta vegna að þetta er alveg rándýr tiltekt og þetta eru líklega dýrustu sprungur á Íslandi. Leiðréttingarnar eru örugglega einhverjar þær ævintýralegustu sem hafa sést í manna minnum því að tölurnar segja að tiltektin kosti yfir 30 milljarða kr. Eigum við ekki bara að kalla það skattahækkun?