fundur um kílómetragjald.
Virðulegi forseti. Hér kemur hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar og upplýsir okkur um að einn tæknifeill af tugum sem okkur hefur verið bent á, ein íþyngjandi aðgerð af tugum sem okkur hefur verið bent á hefur verið löguð, aðeins ein. Hefur öðrum hagaðilum verið svarað á sams konar hátt? Hefur öðrum hagaðilum verið gefnar svipaðar væntingar um það að áhyggjum þeirra sé svarað, er búið að lofa því að þessi íþyngjandi ákvæði sem eru þarna verði endurskoðuð? Það liggur fyrir að stjórnarþingmaður er búinn að gefa væntingar um að íþyngjandi löggjöf og flókið kerfi verði endurskoðað, krafist þess að það verði endurskoðað og yfirfarið. Það er ekki nóg að ein tæknileg villa sé leiðrétt hér. (Forseti hringir.) Það er svo margt annað undir í þessu máli og margt annað sem þessi hagaðili sem sendi þetta inn hefur áhyggjur af heldur en þessi eina tæknivilla.