fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Það er áhugavert að við séum að ræða þetta núna þegar við erum ekki búin að klára bandormana svokölluðu eða skattormana sem eru nú partur af tekjuhluta fjárlaganna. Ég átta mig ekki alveg á því hvernig menn ætla að gera það í framkvæmd, að klára umræðu um fjárlög og vera þar af leiðandi búnir að klára fjárlögin en þeir eiga hins vegar eftir að klára það sem snýr að tekjunum. Á þetta hefur verið bent, virðulegi forseti, en meiri hlutinn ætlar augljóslega að fara fram eins og raun ber vitni.
Bara til svona til upprifjunar, ef við förum aðeins yfir hver staðan er í fjárlögunum, þá verður að segjast eins og er að fjárlög hæstv. ríkisstjórnar eru ekki í neinu samræmi við ummæli hæstv. ríkisstjórnar um fjárlög. Útgjaldaaukningin er 143 milljarðar og slíkt hefur ekki sést í áraraðir, ekki í áratug í það minnsta, jafnvel einn og hálfan, svona mikil aukning á milli ára. Hallinn er núna áætlaður 35 milljarðar þrátt fyrir að afkoma ársins hafi verið jákvæð ef ekki hefði komið til aukinna útgjalda ríkisstjórnarinnar. Verði frumvarpið samþykkt hækka skattar um 30 milljarða og skuldir ríkisins um 82 milljarða á næsta ári. Vegna sölunnar á Íslandsbanka er gjaldfært 10 milljarða tap vegna afsláttarkjara við söluna en forystumenn ríkisstjórnar hafa klappað sér á bakið fyrir söluna og lýst henni sem mjög farsælli. Við höfum hins vegar ekki fengið upplýsingar um það hvort gjaldfærsla út af afsláttarkjörum, gjaldfærsla upp á 10 milljarða vegna þess að hann var talinn í bókum ríkisins 10 milljörðum kr. verðmætari heldur en niðurstaða sölunnar var, út af afsláttarkjörum, hvort það bókfærist árið 2025 eða 2026.
Við þekkjum þessar skattahækkanir og ég ætla ekki að bæta mikið í það að öðru leyti en því að hæstv. ríkisstjórn hætti ekki skattahækkunum þegar fjárlagafrumvarpið var komið fram heldur var haldið áfram og haldinn eftirminnilegur blaðamannafundur um húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem átti að koma síðasta vor en var kynntur í haust. Hann þótti nokkuð sérstakur en það sem er jákvætt í honum er að menn viðurkenndu að séreignarleiðin væri sú leið sem hefði gengið best og að menn ætluðu að viðhalda henni en ekki hætta henni. Síðan hefur ekkert sést af henni og það er ekkert í frumvörpum ríkisstjórnarinnar sem sýnir að það eigi að halda áfram með séreignarleiðina og eftir því sem ég best veit mun hún falla niður núna um áramótin. Í þessum skrýtna húsnæðispakka voru auðvitað skattahækkanir upp á 2,3 milljarða kr. og núna er komið í ljós hverjar ætlanir ríkisins og borgarinnar eru, þetta eru sömu flokkar sem eru í meiri hluta á báðum stöðum: Það á að byggja 4.000 íbúðir í Úlfarsárdal og hverfið á að verða tvöfalt þéttara en Fellahverfið. Loforð um að tvöfalda ekki Hallsveg, sem voru gefin bara fyrir nokkrum mánuðum og endurtekin út af Sundabrautinni, eru svikin og við erum að sjá hér enn og aftur skipulagsslys Reykjavíkurborgar. Það líður ekki sá dagur að menn fái ekki fréttir af vandræðum í tengslum við það með þeim afleiðingum sem það hefur, bæði fyrir borgarbúa og landsmenn alla, því að með því að byggja þétt og dýrt og án bílastæða þá hækkar þú kostnað á húsnæði, hækkar verðbólgu og býrð til vanda sem þyrfti ekki að vera til ef menn myndu ekki nálgast þetta með þessum hætti.
Það jákvæðasta sem hefur gerst, virðulegi forseti, í þessu ferli öllu er það að menn hafa alla vega hikstað við að hækka erfðafjárskattinn. Eins og við þekkjum kom hér frumvarp í skjóli nætur, og ég segi í skjóli nætur vegna þess að það var um miklar skattahækkanir að ræða sem menn kynntu ekki þegar þeir kynntu viðkomandi frumvarp, sem gekk út á að hækka andlagið á erfðafjárskattinum með tilheyrandi afleiðingum sem brugðist var hart við og fer af því tvennum sögum hvert það mál leiðir. Hér hafa komið hv. stjórnarþingmenn og talað gegn þessu máli, jafnvel talað gegn erfðafjárskattinum, en þeir mega sín ekki mikils gagnvart öðrum hv. þingmönnum sem segja að þessu máli sé hvergi lokið og formaður hv. efnahags- og viðskiptanefndar er nú bara að taka sér, ef ég skil rétt, jólafrí frá því að hækka erfðafjárskattinn. Við styðjum þá hv. stjórnarliða sem eru okkar megin í tilverunni þegar kemur að erfðafjárskattinum. Á það hefur verið bent að nú sé meiri hluti fyrir því að afnema hann í þinginu og núna reynir á hv. þingmenn sem hafa haft uppi orð um að þeir vilji afnema skattinn, hvort þeir muni standa með sinni sannfæringu eða halda áfram á þessari skattaleið ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórnin er búin að skreyta sig með mjög stolnum fjöðrum. Við þekkjum umræðuna um vextina þar sem menn eru gífuryrtir án innstæðu og sömuleiðis er fullyrðingin um að 15 ára samgönguáætlun sé að fullu fjármögnuð úr lausu lofti gripin. Það liggur alveg fyrir að ríkisstjórnin tekur við mjög góðu búi og, eins og hefur komið fram, og tekjur voru meiri en hallinn á árinu, viðbótartekjur ársins 2025. Ef hæstv. ríkisstjórn hefði ekki farið í þessar útgjaldaaukningar í fjórum fjáraukum hefðu fjárlögin verið hallalaus. Skuldir ríkissjóðs eru lágar í alþjóðlegum samanburði og lánshæfismat ríkissjóðs er með besta móti, hefur aldrei mælst betra en nú. Lífeyriskerfið er eitt það öflugasta á byggðu bóli, ef ekki það öflugasta, og kyrrstaða í orkumálum hefur verið rofin. Það var ánægjulegt að sjá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á forsíðu Morgunblaðsins þar sem kynntar voru stækkanir í Svartsengi en það hefur stækkað mikið á undanförnum árum út af þeim aðgerðum sem var farið í, einföldun á reglugerðaumhverfi, í tíð síðustu ríkisstjórnar. Það er að vísu bara brot og ég ætla ekki að fara nánar í orkumálin hér nema það sé vilji fyrir því af hálfu einhverra þingmanna, þá er sjálfsagt að fara yfir það. Við þekkjum það að nýsköpunarumhverfið hefur tekið algjörum stakkaskiptum og mikið er til af ríkiseignum sem hægt er að losa um til að lækka skuldir og auka verðmætasköpun. Ég heyri það að hv. þingmenn meiri hlutans eru nú eitthvað að hreyfa sig varðandi það að selja einhverjar eignir en það var áhugavert að þeir skyldu fella allar tillögur um slíkt sem komu fram þegar við greiddum atkvæði í 2. umræðu fjárlaga. Batnandi fólki er best að lifa en það er áhugavert þegar stjórnmálamenn eru þeirrar gerðar að geta aldrei samþykkt góðar tillögur frá neinum öðrum en sjálfum sér. Það verða þeir auðvitað að eiga við sjálfa sig. Aðalatriðið er þetta: Við styðjum auðvitað sölu þessara eigna sem eru núna komnar fram en eigum erfitt með að skilja af hverju engin af tillögum minni hlutans, sem voru ítarlegar og góðar, um sölu eigna var samþykkt við fjárlögin. Skuldir heimilanna mælast lægstar á Norðurlöndunum og samkvæmt Hagstofunni hafa vanskil heimila aldrei mælst minni.
Virðulegi forseti. Það sem er áhugavert í allri þessari skattaumræðu og hefur eðli máls samkvæmt verið bent á er það að ríkisstjórnin kom fram, ef við tökum þetta saman, þegar þing kom saman í byrjun árs, með gríðarlega mikið af málum sem voru illa unnin og fá afgreidd. Núna hafa hins vegar fá mál komið sem eru þó illa unnin og verða væntanlega ekki mjög mörg afgreidd. En það er alltaf skellt við skollaeyrum þegar kemur að athugasemdum frá hagaðilum og þeim sem gerst þekkja til. Menn kynnu kannski að segja: Þetta er allt í lagi, ríkisstjórnin er alveg með þetta. Ókei, skoðum bara síðasta sumar. Hér var tekin mikil umræða um skattahækkunarfrumvarp síðustu ríkisstjórnar, þau ætluðu að hækka skatta á sjávarútveginn. Man þetta einhver, þetta var í smátíma? Það átti að auka tekjur ríkissjóðs um 7,5 milljarða. Man þetta einhver? 7,5 milljarðar, hvorki meira né minna, sem áttu að leysa allan heimsins vanda, þessar auknu tekjur ríkissjóðs. Jæja, virðulegur forseti, núna er 3. umræða, sjáum hverju þessi aukning skilaði. Aftur: Þetta átti að skila 7,5 milljörðum kr. Hver er niðurstaðan? Þetta skilaði 900 milljónum. Maður spyr sig: Ef hæstv. ríkisstjórn hefði kannski hlustað eitthvað á athugasemdir frá hagaðilum og frá aðilum sem gerst þekkja til, hefðu menn hugsanlega getað gert það með einhverjum öðrum hætti? En bara núna við þessa afgreiðslu þá lækka tekjur ríkisins, þ.e. milli 2. og 3., samkvæmt tillögum meiri hlutans, tekjur af veiðigjöldum lækka um 6,7 milljarða kr.
Ég ætla aðeins að fara yfir það á eftir að við höfum ákveðnar áhyggjur af málum eins og vörugjöldunum en það hefur ekki neitt verið hlustað, ekki neitt. Gæti verið að það muni ekki skila 7,5 milljörðum aukalega í ríkissjóð? Veit ekki, það kemur í ljós. Ég er nokkurn veginn alveg viss um að það muni ekki skila því sem lagt var upp með. En til að bjarga þessu, til að bjarga sér fyrir horn, til að ná þessari svokölluðu stöðugleikareglu, sem er reyndar löngu sprungin, eru menn með stórkostlegt ráð — og haldið ykkur nú, virðulegi forseti og hv. þingheimur. Hvernig fylla menn í göt? Ráða ríkisstarfsmenn, 15 stykki, í Skattinn. Kostnaðurinn er 250 milljónir sem eiga að skila 1,1 milljarði í skatta bara úti um allt. Þetta er í alvörutillaga og þeir eru í alvöru að fara að samþykkja þetta, 15 stykki. [Hlátur í þingsal.] Það sem okkur vantar eru fleiri ríkisstarfsmenn, virðulegi forseti, og þetta frumvarp bætir þar um; 15 í Skattinn, það kostar 250 milljónir og þeir ætla með því að ná 1,1 milljarði. Við spurðum: Af hverju voru það ekki 2,2 eða 3,3 milljarðar? Af hverju réðu menn ekki bara 30 eða 45 starfsmenn? Hugsið ykkur, ef menn hefðu ráðið 150. (Gripið fram í: Hallalaus fjárlög.) Auðveldlega, hallalaus fjárlög. Þeir eru með stórkostlegt tækifæri, fundu leiðina til lausnar (Gripið fram í: Í 3. umræðu.) — í 3. umræðu — að ráða fólk í Skattinn til að sækja tekjur. Og þeir komu bara með 15, ekki 150. Hér eru menn að glutra niður tækifærum. Það er ekki annað hægt en að hlæja að þessu, virðulegur forseti. Þetta er náttúrlega svo fullkomlega galið að það tekur ekki neinu tali.
Svo bara hvet ég alla til að fá sér vegabréf fyrir áramót því að það hækkar um 5.000 kr. eftir áramót, og klárið að þinglýsa því að sá kostnaður hækkar um 41%. Þeir halda sig vera innan stöðugleikareglunnar en hún hangir á bláþræði. Fjárlögin eru rúmlega 1.600 milljarðar, og haldið ykkur nú, stöðugleikareglan hangir á 15 milljónum. Ef einn starfsmaður í Skattinum er veikur þá er þetta farið. Það bara verður að halda þessu fólki heilsuhraustu. Það má ekki vera of lengi í fríi og alls ekki fá flensu, alls ekki, því að þá er stöðugleikareglan farin. Ég hvet meiri hlutann í hv. fjárlaganefnd til að fylgjast vel með starfsmönnum Skattsins og fara að bólusetja þetta fólk, það er lykilatriði. Það má ekki fá flensu, þá er stöðugleikareglan farin. (Gripið fram í.) Þetta eru heilar 15 milljónir og það verður að fylgjast með þessu, virðulegi forseti, það er ekki annað hægt.
En þetta er ekki búið. Það er fleira áhugavert í þessu frumvarpi. Til dæmis komu hérna breytingar á milli umræðna og einhver hefði nú haldið að þetta væru breytingar eitthvað í takt við þær fréttir sem við fáum. Nú er það þannig að veiðigjöldin hafa farið niður um 6,7 milljarða kr. Veiðigjöldin eru eitthvað sem enginn skilur en þó vitum við að þau eru tengd afkomu útgerðarinnar. Þetta er ekki svona hreint og byggt á því hvað menn veiða. Þetta er tengt afkomunni þannig að ef veiðigjöldin lækka þá þýðir það að afkoma útgerðanna er ekki jafn góð. Svo þekkjum við það að Play fór á hausinn og við vitum að skattahækkanir á ferðaþjónustu munu skaða samkeppnishæfnina. Við vitum þetta, virðulegur forseti. Síðan vitum við að það eru alvarlegir hlutir í Norðuráli uppi á Grundartanga og á Bakka eru líka alvarlegir atburðir í iðnaði. Svo vitum við líka af tollastríðum og öðru slíku. Þannig að flestir hérna myndu draga þá ályktun að skattar á fyrirtæki yrðu lægri. Það myndi skila sér minna. En ekki ríkisstjórnin, virðulegur forseti. Alltaf á milli umræðna, þrátt fyrir að þjóðhagsspáin sé verri og geri ráð fyrir minni hagvexti, aukinni verðbólgu, þá hækkar tekjuskattur fyrirtækjanna. Þau gera alltaf ráð fyrir því að fyrirtækjum gangi betur því verr sem árar í atvinnulífinu. Það er reyndar þannig að það er búið að gera skoðanakönnun um atvinnulífið á vegum Samtaka atvinnulífsins og spáin hefur ekki verið svartsýnni síðan á tímum heimsfaraldursins. En alltaf hækkar tekjuáætlun í fjárlögum. Þetta er áhugavert.
Síðan er það nú þannig, virðulegi forseti, og þetta er alvarlegt mál, að við höfum kallað eftir því að hér sé okkur gert kleift að sinna okkar störfum. Við eigum að gæta hagsmuna almennings og þjóðarinnar og til þess þurfum við að fá upplýsingar. Um þetta hefur verið góð samstaða, sem betur fer, vegna þess að almennt eru, held ég, allir Íslendingar, eða alla vega flestir, lýðræðissinnar, trúa á lýðræðið og stofnanir þess. Við höfum t.d. kallað eftir því að fá upplýsingar um það sem er kallað varnartengd verkefni. Af hverju? Vegna þess að ríkisstjórnin hefur sagt okkur að það á að hækka útgjöld til varnartengdra verkefna upp í 77 milljarða á ári — 77 milljarða. Árið 2025 voru varnartengd verkefni innan við 7 milljarðar. Það á að fara upp í 77, ekki á einu ári heldur á nokkrum árum, en það er augljóst að menn þurfa að hækka það. Við fáum þær upplýsingar í nefndinni og í skriflegum svörum að varnartengdu verkefnin séu komin upp í 24 milljarða, jafnvel hærra, og við höfum beðið sífellt og þráfaldlega um upptalningu á því, sundurgreiningu á því hvar þetta liggur.
Það er grafalvarlegt mál að við fáum ekki svör frá framkvæmdarvaldinu. Reyndar er það þannig að við ættum ekki að vera að afgreiða þessi fjárlög vegna þess að við erum ekki búin að fá upplýsingar til að ganga frá nefndarálitinu. Þetta fordæmi er gríðarlega alvarlegt. Hér er hæstv. ríkisstjórn að gefa þá línu að hún geti vaðið yfir hv. þingmenn, geti vaðið yfir hv. Alþingi og bara gefið þær upplýsingar sem hún vill þegar hún vill. Það er gríðarlega alvarlegt. Ég hvet hv. stjórnarþingmenn og hæstv. ríkisstjórn til að hugsa sinn gang. Hér er verið að skapa fordæmi sem ég veit ekki til að hafi sést áður og með ólíkindum að sjá hvernig framkvæmdarvaldið kemur fram gagnvart þinginu.
Við þekkjum, virðulegur forseti, að heilbrigðismálin voru eitthvað sem t.d. Samfylkingin lagði mikla áherslu á og ætlaði hér allt að laga. En þrátt fyrir þessi stórauknu ríkisútgjöld þá erum við að fá neikvæðar fréttir frá Landspítalanum og öðrum aðilum í heilbrigðisstéttum og við munum fylgjast grannt með því. En þarna fer ekki alveg saman hljóð og mynd því að það hefur ekkert vantað upp á yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar.
Ég var búinn að nefna stöðugleikaregluna en það er ekki aðeins að hún hangi á þessum 15 milljónum heldur er það líka svo að hallinn er orðinn 0,5% af vergri landsframleiðslu, sem er það sama og gert er ráð fyrir í fjármálaáætlun þar sem við erum komin upp í þak, það er komið upp í þak alls staðar og það er mjög margt sem bendir til þess að tekjuáætlun fjárlaga muni ekki standa standast. Eitt af því sem er mjög veikt eru vörugjöldin. Við fórum yfir það í áliti 3. minni hluta við 2. umræðu hvernig þróunin var varðandi bílasölu. Það er tafla í því nefndaráliti á blaðsíðu 9 þar sem við sýnum að sala á bílum, sérstaklega bensín- og dísilbílum, hefur aukist mjög mikið miðað við sama tíma í fyrra. Hvað þýðir þetta? Það þýðir það að fólk er að borga vörugjöldin eins og þau eru í ár en það er harla ólíklegt að fyrirtæki og fólk kaupi sér bíla aftur á næsta ári og borgi þar af leiðandi háu vörugjöldin. Við erum þráfaldlega og síendurtekið búin að spyrja um forsendurnar á bak við þetta. Spurningarnar eru einfaldlega þessar, með leyfi forseta: Forsendur vörugjalda á bifreiðar. Hverjar eru þær? Hvað er gert ráð fyrir sölu margra bifreiða eftir flokkum í frumvarpinu 2026. Og síðan: Hverjar verða áætlaðar tekjur af vörugjöldum á bifreiðar árið 2025? Hvað var gert ráð fyrir að þau yrðu mikil í frumvarpinu 2025? Virðulegur forseti. Ég spurði að þessu aftur og aftur og aftur og aftur, bara að fá hvaða tölur eru og hvernig hefur gengið, af því að það er búið að segja okkur að hafa engar áhyggjur af þessu.
Við fengum loksins svar í gær en við höfum beðið eftir þessu í margar vikur. Svarið er svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Við áætlun tekna af vörugjöldum á ökutæki er horft til ýmissa þátta, þ.á m. innheimtu, nýskráninga og þjóðhagsspár frá Hagstofu Íslands. Tölur um nýskráningar eru greindar en ekki er gerð tilraun til að gera nákvæma spá um framtíðarsölutölur ökutækja í hverjum flokki heldur er horft heildstætt á þróun teknanna að teknu tilliti til undirliggjandi hvata og þjóðhagsspár.“
Og síðan er bara upptalning á tölunum. Þegar maður les þetta þá er eins og menn hafi sett puttann upp í loftið og metið svona sirka hvað myndi gerast bæði í ár og á næsta ári. Það er svolítið áhugavert vegna þess að í umræðunni í nefndinni var alltaf talað um reiknimódel og að það væru alltaf einhver reiknimódel í gangi. En nú er það bara þannig, og það vita allir, að það er verið að hamstra bíla fyrir áramót, sem ég held að sé auðvelt að draga þá ályktun af að það verði hærri tekjur af vörugjöldum 2025 en gert er ráð fyrir og lægri 2026. Þannig að ég spái því að það verði svipað með vörugjöldin og veiðigjöldin; menn munu ekki ná þessum 7,5 milljörðum sem menn ætluðu í hækkun á vörugjöldum. Þá dugar lítið þó að þessir 15 nýju starfsmenn Skattsins séu duglegir, þeir munu ekki vega neitt upp í það. Það er óþolandi og fyrir neðan allar hellur hvernig framkvæmdarvaldið hefur komið fram í þessu og það er með ólíkindum að þurfa að hafa jafn mikið fyrir og raun ber vitni að fá upplýsingar sem við eigum rétt á.
Virðulegi forseti. Það er ekkert aðhald eða sparnaður í þessu en ég sá í fréttum í dag að ríkisstjórnin er búin að halda blaðamannafund um hvað hún ætlar að gera í hagræðingarmálum. Það var nú ekkert smá. Hæstv. ríkisstjórn ætlar að ná 107 milljörðum, hvorki meira né minna en 107 milljörðum á fjórum árum. Við Sjálfstæðismenn vorum með tillögu um 45 milljarða bara í ár. En 107 milljarðar á fjórum árum og þeir eru ekki byrjaðir — það er ekki mikill metnaður. Enda þegar maður fer að skoða hvað er þarna inni: Hvað er frá forsætisráðuneytinu? Pappírslausir ríkisstjórnarfundir, hvorki meira né minna. Þetta er velta upp á 1.600 og eitthvað milljarða. Og hvað ætlar forsætisráðherra að gera? Pappírslausa ríkisstjórnarfundi. Í alvöru, virðulegi forseti? Í alvöru? Ætla þeir ekki líka að sleppa því að kaupa nýjan heftara? Af hverju er það ekki tilgreint? Vitið þið hvað heftari kostar? Ég held að það séu 300–400 kr. Þetta er tilgreint í alvöru. Þeir halda blaðamannafund og nefna sem fyrsta mál pappírslausa ríkisstjórnarfundi. Nú voru þeir með hugmynd um að gera hvorki meira né minna — og reyndar úthúðuðu þeir síðustu ríkisstjórn af því að það var í frumvarpi sem ég flutti, að Þingvallaþjóðgarður ætti að sameinast inn í stofnun sem sér um rekstur þjóðgarða og friðlýstra stofnana. Þeir eru búnir að draga í land með það en, virðulegi forseti, pappírslausu ríkisstjórnarfundirnir eru inni.
Dómsmálaráðuneytið, þeir eru stórhuga. Það á að hætta að prenta þingskjöl, virðulegur forseti. Hætta að prenta þingskjöl. En ég get sagt þeim að það mun ekki virka. Það mun bara þýða meiri kostnað því að við þurfum að prenta þingskjölin út áfram. Þeir ætla að vísu að afnema skyldu jafnlaunavottunar, sem er áhugavert vegna þess að þeir felldu tillögu þar um bara fyrir nokkrum dögum.
Fjármálaráðuneytið, bætt fjárstýring. Meiri hlutinn var að fella tillögu þar um fyrir nokkrum dögum síðan. Síðan eru bara hlutir sem við þekkjum og voru í gangi. Það er eiginlega ekkert nýtt nema — og nú horfi ég sérstaklega hér á hv. þingmenn landsbyggðarinnar sem verða að ferðast mikið — og haldið ykkur nú: Hagræðingaraðgerð. Það á að fara í hraðamyndavélakerfi í umferð. Það er hagræðingin. Nú skulu menn bara að halda sig á 90 því að ríkisstjórnin ætlar að fara að drita niður hraðamyndavélakerfum til að hagræða. Þetta heitir að sækja peninga til fólks sem fer aðeins fram yfir hámarkshraða, líka til þeirra sem fara bæði mikið og lítið fram yfir hámarkshraða.
Síðan eru hérna sameiningarhugmyndir sem ríkisstjórnin var að fella fyrir nokkrum dögum. Þegar þinginu er lokið, þegar þeir eru að klára málin, þá halda þeir blaðamannafundi um þetta.
Svo erum við aftur með mikinn metnað, með leyfi forseta: Þá hefur menningarráðuneytið til skoðunar — til skoðunar — „sameiningu/samrekstur fjölmiðlanefndar með öðrum stofnunum“. Virðulegi forseti. Ég held að það þurfi að halda sérstakan blaðamannafund bara um þetta. Þeir ætla að skoða hugsanlega að sameina eða reka saman fjölmiðlanefnd með öðrum stofnunum. Og svo eru hér innkaup og jafnlaunavottun, sem er allt saman í gangi og löngu farið af stað og meira og minna allt saman hlutir sem voru í einhverjum farvegi og/eða voru tillögur hér sem voru felldar fyrir nokkrum dögum síðan.
Virðulegur forseti. Kannski á ekki að grínast með alvarleg mál en þetta er auðvitað fyrir neðan allar hellur. Við erum hér að horfa á fjárlög sem eru ekki bara með lítinn metnað heldur beinlínis skaðleg fyrir land og þjóð. Ég veit ekki hvort það á að kalla það skattasýki, metnaðarleysi eða hvað sem það er. Ég ætla ekki að endurtaka allt það sem ég er búinn að segja hér áður. Þetta mun ekki hafa góð áhrif í för með sér. Hæstv. ríkisstjórn getur þó ekki sagt annað en að það hafi verið bent á vankantana bæði af stjórnarandstöðu og þeim sem sendu umsagnir. En ríkisstjórnin ákveður að hlusta ekki á neitt nema í einu máli og það var í erfðafjárskattinum.