157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:43]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni kærlega fyrir svarið við mínu andsvari. Ég held að við deilum áhuga á hagræðingu í ríkisrekstri og sameiningu stofnana. Ég greiddi sjálfur atkvæði gegn þeim tillögum sem hv. þingmaður stóð að ásamt hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni, kannski helst af því að ég stóð m.a. í þeirri trú að til að ráðast í slíka sameiningu þyrfti einmitt að koma lagafrumvarp og sameiningarferli að einhverju leyti að eiga sér stað áður en við myndum fara að gera ráð fyrir sameiningunni í fjárlögum. En mér fannst hv. þingmaður svara þessu prýðilega.

Í síðara andsvari vildi ég spyrja út í það sem við ræddum jafnframt hér í dag í atkvæðagreiðslum, af því að hv. þingmaður ítrekaði í ræðu sinni áðan að árið 2025 hefði verið hallalaust ef ekki væri fyrir útgjöld í fjárauka. Þær hækkanir í fjárauka eru m.a. 43,6 milljarðar vegna hækkunar á lífeyrisskuldbindingum ríkisstarfsmanna, 23,9 milljarðar vegna aukinnar skuldsetningar A1–hluta ríkisreiknings, þ.e. aukinna vaxtagjalda, og rúmlega 5 milljarðar vegna fjölgunar ellilífeyrisþega. Er þingmaður á þeirri skoðun að við ættum einfaldlega ekki að samþykkja þessi útgjöld og þar með ná fram hallalausu ári 2025 eða stendur hv. þingmaður við það að árið 2025 sé hallalaust?