157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[21:02]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Við ræðum hér fjárlagafrumvarpið í 3. og síðustu umræðu. Við höfum afgreitt ótal breytingar og haldið margar ræður um fjárlögin þannig að þetta er síðasta innlegg mitt í þessa umræðu, myndi ég halda. Ég ætla bara að fara yfir þetta í stórum dráttum. Í fyrsta lagi ber að nefna að fjárlög íslenska ríkisins hljóða upp á einhverja 1.600 milljarða. Útgjaldaaukning ríkisstjórnarinnar næsta ár hljóðar upp á 143 milljarða, ég myndi reyndar halda að þetta væri hátt í 9% af heildarútgjöldum. Það er sem sagt verið að auka útgjöld ríkisins um 9%. Það er auðvitað töluvert umfram verðlagshækkanir. Það skýrist af ýmsu og ég ætla alls ekki að fara ofan í hverja einustu tölu. En auðvitað eru vaxtagjöld ríkisins þarna stór þáttur sem er orðinn sligandi í ríkisútgjöldunum, hversu háa vexti ríkið er að greiða af skuldum hins opinbera. Það þarf auðvitað að vinna ötullega að því að skila hallalausum fjárlögum og skila afgangi sem allra fyrst til þess að unnt sé að greiða niður skuldir ríkissjóðs. Vaxtagjöldin eru tæpir 150 milljarðar en á móti koma einhverjar vaxtatekjur þannig að við erum að greiða tæpa 100 milljarða í vexti. Við verðum að vinna bug á því og greiða niður skuldir ríkissjóðs sem allra fyrst til að við getum notað þessa fjármuni í að byggja upp samfélag sem við viljum sjá; efla innviðina, eins og það er orðað í dag, þ.e. að byggja vegi og brýr og göng og efla heilbrigðiskerfið og löggæslukerfið og menntakerfið og þau kerfi sem við viljum hlúa að og teljum að ríkið eigi að sinna. Í dag er geta okkar til þess skert sem því nemur að við erum að greiða allt of stóran hluta af útgjöldum ríkisins í vexti og þeir fjármunir verða auðvitað ekki notaðir í neitt annað á meðan. Þetta kemur til af ýmsu og ég ætla ekki að rekja það. Menn hafa gert það.

Núverandi ríkisstjórn smíðaði sér fljótlega reglu sem þau vilja kalla stöðugleikareglu, sem fjallar í stuttu máli um það að ríkisútgjöld megi ekki vaxa um meira en 2%, hluti ríkisútgjalda að vísu. Þessa reglu má alls ekki brjóta, þau hafa gefið það út og þau rembast og engjast við að reyna að halda sig innan hennar, eðlilega. Menn eiga að virða þær umgengnisreglur sem þeir sjálfir setja sér. Af þessum 1.600 milljörðum sem ríkisútgjöldin telja hangir þessi regla ríkisstjórnarinnar, stöðugleikareglan, á litlum 15 milljónum. Vitið þið hvað það er stór hluti af útgjöldunum? Vitið þið það? Það er ekki 1%. Það er ekki 0,1%. Það er ekki 0,01%. Það er ekki 0,001%. Nei, það er 0,0009 og eitthvað prósent. Ef menn hanga á bláþræði, á hálmstrái eða á bjargbrún, hvernig sem menn vilja orða það, þá má segja að þessi stöðugleikaregla hangi á tvinna. Hún hangir á tvinna. Þetta er eins og að vörubíll hangi á tvinna. Það má ekkert út af bregða, eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson orðaði það svo ágætlega hér áðan, starfsmaður hjá Skattinum má varla veikjast þá er stöðugleikareglan farin.

En gott og vel, ef menn vilja halda sig innan þessarar reglu og geta auðvitað reiknað sig á allan hátt inn í það að standast hana — og mér sýnist margt í frumvarpinu einmitt miðast við það að reyna að hanga þarna inni, eins og þetta dæmi um að setja 250 milljónir í skatteftirlit, ráða 15 nýja starfsmenn sem eiga að vera iðnir við að reyna að finna einhvers konar skatta einhvers staðar, sem þeir geta fundið ofan í skúffum, og leggja á skatta og auka eftirlit og vera með alls konar excel-skjöl sem þeir munu mata tölvurnar á og út úr því á að koma 1,1 milljarður. 250 milljónir eiga að skila 1,1 milljarði, þ.e. rúmlega fjórfalt meira en það kostar. Gott og vel. Kannski hefði átt að setja í þetta 2,5 milljarða, þá hefðum við fengið 11 milljarða út úr því. Þannig að menn eru svolítið að reikna sig upp í það að þetta muni standast, ekki bara þarna heldur víða annars staðar, frú forseti. Menn eru t.d. — eðlilega, ég ætla nú kannski ekki að deila á það að það komi til lækkun vegna lækkaðra áætlaðra daggjalda hjúkrunarheimila sem ekki er búið að byggja. Ég geri engar athugasemdir við það. Þarna koma 2,2 milljarðar sem ekki þarf að eyða. Gott og vel. Framkvæmdir við nýjan Landspítala, þar eru 2 milljarðar. Þar sitja inni einhverjir 10 milljarðar og menn ætla ekki að nota nema kannski 8, þannig að þar eignast menn 2 milljarða aukalega, í bókhaldinu, allt svo. Gott og vel. Menn geta þá reiknað: Af hverju höfðu þeir þetta ekki bara 3 milljarða eða 4?

Svo á að lækka framlag til byggingar nýrrar þjóðarhallar. Þar reikna menn sér tæpan milljarð? Já, gott og vel. Áætlanir um þá byggingu ganga eitthvað hægar en menn gerðu sér vonir um. Þannig að menn eru svona að fikta og fiffa í bókhaldinu og færa tölur og eiga einhverja sjóði sem þeir geta svo fært á milli dálka og enda á þessari stöðugleikareglu sem þeir hanga á, 0,00098%. Ég sé að hv. þingmaður er að skrifa það niður sem þetta hangir á.

Ég er bara að benda á að auðvitað er þetta bara bókhaldsfiff, frú forseti. Þetta er bara bókhaldsfiff. Ég tala nú ekki um ef við bætum við horfunum: Hvernig eru horfur í samfélaginu? Við heyrum fréttir af alls kyns áföllum, aukinni svartsýni, verri horfum í ýmsum greinum samfélagsins en áður. Við spyrjum í hv. fjárlaganefnd: Hverju mun þetta valda? Hver eru áhrifin á fjárlögin? Jú, menn reikna sig niður um 0,1% o.s.frv. Þetta er auðvitað allt saman eins og menn setji puttann upp í loftið til að reyna að finna út hvaðan vindurinn kemur. Menn eru bara svona að giska. Ég tel menn vera fullbjartsýna í þessu. Ekki það að ég vilji vera svartsýnn, en við erum að benda á ýmis teikn sem eru á lofti og ekki síst, frú forseti, áhrif af aðgerðum stjórnvalda sjálfra, þ.e. skattlagningu.

Við bentum á það hér í sumar og það var náttúrlega bara slökkt á okkur. Menn ýttu bara á takkann — engin útsending. Við bentum á það að veiðigjöldin myndu valda ákveðnum atburðum úti í samfélaginu. Ég var nú lengi í Vestmannaeyjum og þetta taldi ég mig bara vita; ég reyndi að segja þingheimi hvað ég teldi vera líklegt að myndi gerast. Þetta er smám saman að gerast, því miður. Ég vildi óska þess að það myndi eiga sér stað með einhverjum allt öðrum hætti, að sjálfsögðu,. En það hefur afleiðingar þegar skattar eru hækkaðir, alveg eins og skattar á leigutekjur hafa þau áhrif að hugsanlega hækkar leigan. Ríkisstjórnin virðist ekkert vera rosalega góð í svona orsakasamhengi, að einhver atburður hafi einhverjar afleiðingar. Þau virðast ekki átta sig á því. Alveg eins og með erfðafjárskattinn sem kom hér inn illu heilli. Ég tel, eins og ég sagði hér í ræðu fyrr í dag eða í gær, um þennan atburð, að þetta skyldi detta þarna inn í þetta frumvarp, að tilurð þessarar hugmyndar verði að feðra. Það verður að feðra þessa hugmynd. Það verður að finna út hvaðan þetta er komið. Menn segja að það hafi verið mistök, þetta hefði ekki átt að hækka skatta. Það sáu allir að þetta myndi hækka skatta. Menn voru eitthvað hissa: Ha, þetta á ekki að hækka neitt. En auðvitað gerði það það. Þess vegna er ég að tala um þetta orsakasamhengi. Það verður að feðra þessa hugmynd. Er hún ættuð úr skrifborðum stjórnarflokkanna eða bara úr ráðuneytinu? Hefur einhver hrekkjóttur ráðuneytismaður skrifað þetta þarna inn og væntir þess líklega að þingmenn taki ekki eftir þessu og átti sig ekki á þessu? Sem stundum hefur gerst, frú forseti. Það hafa komið frumvörp sem enginn hefur áttað sig á, lagabreytingar, og þau hafa farið hér í gegn. Og svo hafa menn vaknað upp við vondan draum daginn eftir eða stuttu seinna við að þarna hafa orðið einhver mistök í lagasetningu sem enginn hefur tekið eftir. Þetta hefur gerst hérna og það eru til dæmi um það. Var þetta þess eðlis, þessi erfðafjárskattur? Nei, þetta var ígrundað og rökstutt, þannig að þetta þarf að feðra. Það þarf að finna höfundinn að hugmyndinni að þessum erfðafjárskatti.

Ég er að tala um orsakasamhengi og ég er að tala um afleiðingar af því að verið sé að hækka veiðigjald, hækka vörugjald á bifreiðar. Hefur þetta áhrif á ferðaþjónustuna, sem aftur hefur óæskileg áhrif á skatttekjur ríkissjóðs og síðan á afkomu ríkissjóðs í það heila? Kílómetragjaldið, hvaða áhrif hefur það? Hækkun skatts á leigutekjur, hvaða áhrif hefur það? Hefur það áhrif á verðbólgu og vísitölu? Það er mjög trúlegt að það hækki leigu. Ég sé að fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir að þetta muni hækka um 1%. Með einföldum útreikningi, ef leigusalinn á að vera jafnsettur eftir á, þarf hún að hækka um rúm 6%. Einfaldur útreikningur. Hvaða áhrif hefur það á vísitöluna, leigjendur, leigumarkaðinn í heild? Hæstv. ríkisstjórn verður að fara að átta sig á orsakasamhengi hlutanna.

Tíminn líður allt of hratt, frú forseti. Ég er rétt að byrja en ég ætla nú samt að sleppa því að fara í aðra ræðu.

Við erum að horfa á að það eru versnandi horfur í ferðaþjónustu vegna skatta, vegna þess að markaðurinn þar er viðkvæmur, vegna falls Play air. Iðnaðurinn, það eru bilanir, tollar, skattahækkanir og lokun. Sjávarútvegurinn, aflabrestur. Ég ætlaði að tala um makrílinn alveg sérstaklega en ég verð að sleppa því. Ég er kominn fram yfir tímann.