almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um heilbrigðisþjónustu.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um almannatryggingar, lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða, en það byggist að hluta á máli frá 156. löggjafarþingi sem hlaut ekki afgreiðslu. Lagt er til að hækka almennt frítekjumark ellilífeyris í áföngum á næstu þremur árum, úr 438.000 kr. í 720.000 kr. Þá er lagt til að aldursviðbót örorkulífeyrisþega sem fær greidda slíka viðbót falli ekki niður þegar viðkomandi nær ellilífeyrisaldri líkt og gildandi lög kveða á um.
Að auki eru lagðar til breytingar til að auka skýrleika laga um almannatryggingar og laga um heilbrigðisþjónustu í tengslum við vinnslu og miðlun persónuupplýsinga sem og tölfræðivinnu í tengslum við nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi sem tók gildi 1. september 2025. Enn fremur er lagt til að skilgreina hvaða aðilar teljist þjónustuaðilar í skilningi laga um almannatryggingar þannig að það taki ekki eingöngu til heilsugæslustöðva heldur allra heilbrigðisstofnana sem veita þjónustu í tengslum við endurhæfingu einstaklinga og taka þannig þátt í samstarfi við aðra þjónustuaðila um samhæfingu þjónustu. Þá er með frumvarpinu lagt til að horfið verði frá því fyrirkomulagi að skipa stjórn yfir Tryggingastofnun.
Nefndin hefur fjallað um málið, tekið á móti umsögnum og gestum. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Nefndin fjallaði um skilgreiningu á þjónustuaðilum í 1. gr. frumvarpsins. Við umfjöllun um málið þótti nefndinni óljóst af hvaða ástæðu VIRK — Starfsendurhæfingarsjóður væri sérstaklega tilgreindur sem þjónustuaðili í 1. gr. frumvarpsins frekar en aðrir sambærilegir aðilar eða starfsendurhæfingarsjóðir. Óskaði nefndin því eftir skýringum frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Í minnisblaði ráðuneytisins kom fram að VIRK — Starfsendurhæfingarsjóður væri eini aðilinn sem starfaði á grundvelli laga um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða og samkvæmt samningi við ráðherra. Því væri sjóðurinn sérstaklega tilgreindur í 1. gr. frumvarpsins. Að fengnum þessum skýringum ráðuneytisins telur meiri hlutinn skýrt fram komið af hvaða ástæðum VIRK — Starfsendurhæfingarsjóður er tilgreindur sérstaklega í frumvarpinu. Bendir meiri hlutinn á að með því að tilgreina VIRK — Starfsendurhæfingarsjóð sérstaklega verði að líta svo á að breytingu þurfi á lögum um almannatryggingar geri ráðherra síðar meir samning við sambærilegan aðila samkvæmt lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða svo þessi aðili geti talist þjónustuaðili samkvæmt lögum um almannatryggingar.
Þá fjallaði nefndin um þá tillögu frumvarpsins að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar. Frumvarpið kveður á um að stjórn Tryggingastofnunar verði lögð niður og stofnunin heyri þá beint undir ráðherra. Í umsögnum sem bárust um frumvarpið er þessari breytingu fagnað af mörgum þeirra á meðan aðrir umsagnaraðilar leggjast gegn breytingunni og telja að betur fari á því að skilgreina hlutverk stjórnar frekar og rýna hvernig hún er skipuð. Í greinargerð með frumvarpinu og minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að stjórnir stofnana sem heyra beint undir ráðherra hafi almennt óljósa stöðu og hlutverk og bent hefur verið á að hætta sé á óljósum ábyrgðarskilum stjórnar forstöðumanns stofnunar. Þá hafði Ríkisendurskoðun vakið athygli á að oft sé stjórnskipuleg staða þeirra óskýr. Með frumvarpinu er sem áður segir lagt til að horfið verði frá því fyrirkomulagi að stjórn sé yfir Tryggingastofnun. Tekur meiri hlutinn undir að slíkar stjórnir þyki almennt hafa óljósa stöðu og hlutverk og hætta sé á óljósum ábyrgðarskilum stjórnar og forstöðumanns. Telur meiri hlutinn að með því að fella brott ákvæði um stjórn Tryggingastofnunar megi ná fram hagræðingu í ríkisrekstri án þess að það komi niður á opinberri þjónustu.
Þá fjallaði nefndin um ákvæði frumvarpsins sem kveður á um að ellilífeyrisþegi sem uppfyllir skilyrði aldursviðbótar örorkulífeyris eða hlutaörorkulífeyrisþega skv. 29. gr. fram til ellilífeyrisaldurs skuli áfram eiga rétt á aldursviðbót samkvæmt 2. mgr. 29. gr. og aldursviðbótin skuli þá bætast við fjárhæð ellilífeyris. Með frumvarpinu er lagt til að horfið verði frá því fyrirkomulagi að aldursviðbótin falli niður þegar einstaklingur nær ellilífeyrisaldri. Umsagnaraðilar voru margir jákvæðir fyrir þessari breytingu. Þó voru einnig reifuð sjónarmið um að um of almenna og kostnaðarsama aðgerð væri að ræða og á það bent að ýmsir hópar sem eiga rétt á aldursviðbót í almannatryggingakerfinu ættu ekki rétt á aldursviðbót samhliða ellilífeyri samkvæmt frumvarpinu.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að gert sé ráð fyrir að þeir sem hafi náð ellilífeyrisaldri fyrir gildistöku laga þessara, verði frumvarpið samþykkt, uppfylli skilyrði til greiðslu aldursviðbótar hafi þeir verið taldir uppfylla skilyrði örorkulífeyris, hlutaörorkulífeyris, sjúkra- og endurhæfingargreiðslna eða endurhæfingarlífeyris samkvæmt lögum um almannatryggingar eða félagslega aðstoð fyrir 44 ára aldur. Hins vegar sé ekki gert ráð fyrir að aldursviðbót samhliða ellilífeyri greiðist til þeirra sem fyrst uppfylltu framangreind skilyrði við 44 ára aldur. Þá segir að hinn nýi greiðsluflokkur fari samkvæmt gildandi lögum eftir breytingar á örorku- og endurhæfingarkerfinu sem tók gildi 1. september 2025.
Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að með frumvarpinu sé lagt til að aldursviðbót sé greidd með sömu skilyrðum og gildi í nýja örorku- og endurhæfingarkerfinu og greiðist því þeim sem voru ungir að árum þegar greiðslur örorkulífeyris eða hlutaörorkulífeyris hófust og er það í samræmi við tilgang viðbótarinnar. Þá kemur fram að ljóst sé að þeir sem hafa átt rétt á aldursviðbót í greiðslukerfinu sem var í gildi til 31. ágúst 2025 en fengu örorkumat 44 ára og eldri eigi að óbreyttu ekki rétt á aldursviðbót samhliða ellilífeyri.
Í minnisblaðinu kemur einnig fram að aldursviðbót sé einkum ætlað að bæta að hluta til upp fyrir það að einstaklingar sem missa getu til virkni á vinnumarkaði ungir að árum hafi ekki haft tækifæri til að stunda atvinnu að fullu og því ekki haft sömu möguleika til að ávinna sér réttindi í lífeyrissjóðakerfinu og þeir sem hafa verið lengur á vinnumarkaði. Þá segir að upplýsingar frá Tryggingastofnun sýni glögglega að einstaklingar sem eru ungir að árum þegar þeir missa getu til virkni á vinnumarkaði að hluta eða öllu leyti hafi að jafnaði áunnið sér mun minni réttindi í skyldubundna lífeyrissjóðakerfinu en þeir sem eldri eru þegar slíkt kemur til.
Að mati meiri hlutans er mikilvægt að hverfa frá gildandi fyrirkomulagi um niðurfellingu aldursviðbótar þegar einstaklingur nær ellilífeyrisaldri. Örorkulífeyrisþegar eru áfram með örorku eftir 67 ára aldur og þeir hafa jafnframt haft takmarkaðri möguleika til að afla sér ellilífeyristekna sökum þess. Telur meiri hlutinn að hér sé stigið mikilvægt skref til framtíðar til að bæta hag örorkulífeyrisþega þegar þeir færast yfir á ellilífeyrisaldur. Þá tekur meiri hlutinn undir það sem fram kemur í minnisblaði ráðuneytisins um tilgang aldursviðbótarinnar sem sé að bæta að hluta til upp fyrir það að einstaklingar sem missa getu til virkni á vinnumarkaði ungir að árum hafa ekki haft tækifæri til að stunda atvinnu að fullu og því ekki haft sömu möguleika til lífeyrisréttindaávinnslu og þeir sem hafa verið lengur á vinnumarkaði. Fyrirkomulag aldursviðbótarinnar eins og það er lagt til í frumvarpinu er að mati meiri hlutans skynsamlegt og eðlilegt.
Nefndin fjallaði að auki um hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyris. Með 5. gr. frumvarpsins er lagt til að hækka almennt frítekjumark ellilífeyris í þremur skrefum frá því sem er 12. desember 2025, úr 438.000 kr. í 498.000 kr. á árinu 2026, 558.000 kr. á árinu 2027 og að endingu 720.000 kr. á árinu 2028. Fjárhæðir taki þó einnig launa- og verðlagsbreytingum í samræmi við fjárlög hverju sinni samkvæmt 62. gr. laga um almannatryggingar.
Umsagnaraðilar sem jákvæðir voru fyrir hækkun almenna frítekjumarksins töldu margir tilefni til að hækka það enn frekar og hraðar en frumvarpið kveður á um. Þeir umsagnaraðilar sem eru mótfallnir hækkuninni telja m.a. að hækkunin sé ekki markviss leið til að lyfta greiðslum til tekjulægri ellilífeyrisþega þar sem hækkað frítekjumark nær til allra ellilífeyrisþega Tryggingastofnunar með aðrar tekjur.
Hækkunin skili þannig engu til tekjulægsta hópsins, þ.e. þeirra sem eingöngu hafa tekjur í gegnum lífeyri Tryggingastofnunar. Þá var á það bent í umsögn Alþýðusambands Íslands að árangursríkari leið væri hækkun ellilífeyris samhliða breytingum á samspili ellilífeyris almannatrygginga og annarra tekna. Kom fram í umsögnum að ráðast þyrfti í frekari greiningar og kortleggja þennan hóp. Í minnisblaði ráðuneytisins kom fram að með frumvarpinu sé lagt til að hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega nái til allra sem hafa aðrar tekjur en greiðslur frá Tryggingastofnun og í minnisblaðinu kom fram að ákvæði um hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega gagnist öllum ellilífeyrisþegum sem eru með aðrar tekjur en greiðslur frá Tryggingastofnun umfram núverandi frítekjumörk. Ávinningur af hækkuðu almennu frítekjumarki nái til þeirra ellilífeyrisþega sem hafa tekjur umfram núverandi frítekjumark sem er 36.500 kr. á mánuði en hækkar í þrepum og verður 60.000 kr. á mánuði árið 2028. Samkvæmt tölfræði á vef Tryggingastofnunar séu efri mörk fyrstu tekjutíundar rúmar 100.000 kr. árið 2024 og er metið að um 3% ellilífeyrisþega séu undir núverandi frítekjumörkum sem hafa þá ekki ávinning af hækkuðu frítekjumarki. Meiri hlutinn telur auðsýnt að hækkun frítekjumarksins komi til með að bæta hag meiri hluta ellilífeyrisþega umtalsvert á næstu þremur árum og styður þær aðgerðir sem frumvarpið boðar. Meiri hlutinn telur að um sé að ræða mikilvægt skref og hvetur félags- og húsnæðismálaráðuneytið til að vinna áfram að því að bæta hag tekjulægstu ellilífeyrisþeganna.
Að lokum fjallaði nefndin um þjónustugátt Tryggingastofnunar fyrir þjónustuaðila og vinnslu persónuupplýsinga. Í frumvarpinu er kveðið á um þjónustugátt Tryggingastofnunar fyrir þjónustuaðila til að miðla upplýsingum á milli þeirra aðila sem þurfa á þeim að halda. Í umsögn Persónuverndar voru gerðar athugasemdir við orðalag a-liðar 6. gr. frumvarpsins um að það sé í mótsögn við 2. mgr. 28. gr. laga um almannatryggingar þar sem kveðið er á um að halda skuli skrá um lýsigögn yfir upplýsingar sem fara um þjónustugáttina. Persónuvernd telur að a-liður 6. gr. frumvarpsins geri ráð fyrir að auk lýsigagna hafi gáttin að geyma þau gögn sem lýsigögn vísa til sem feli í raun í sér nýjan gagnagrunn hjá Tryggingastofnun og telur Persónuvernd því vandséð hvers vegna enn sé gert ráð fyrir lýsigögnum í kerfinu, enda væru þá öll gögnin sem lýsigögnin vísa til komin inn í gáttina sjálfa. Þá gerði Persónuvernd athugasemdir við að í þeirri skrá sem tilgreind er í b-lið 6. gr. frumvarpsins verði að finna persónugreinanleg gögn. Telur Persónuvernd að almennt verði að ætla að ópersónugreinanlegar upplýsingar nægi við slíka vinnslu og telur óljóst hvers vegna skránni er ætlað að geyma slíkar persónugreinanlegar upplýsingar.
Í greinargerð kemur fram að með frumvarpinu sé lagt til að bætt verði við ákvæði 1. mgr. 28. gr. laganna að þjónustuaðilar og þeir aðilar sem veita þjónustu í umboði þeirra skuli miðla upplýsingum um veitta þjónustu inn í gáttina. Þetta sé lagt til þar sem mikilvægt þyki að fyrrgreindir aðilar veiti upplýsingar til þess að Tryggingastofnun sé unnt að hafa nauðsynlega yfirsýn yfir þá þjónustu sem veitt er og geti stuðlað að samfellu í þjónustu og greiðslum. Þá segir að í 2. mgr. 28. gr. gildandi laga sé fjallað um skrá um lýsigögn sem Tryggingastofnun heldur yfir upplýsingar sem fara um þjónustugáttina og tilgreindir þjónustuaðilar geta nýtt til þess að sækja frumgögn. Lýsigögnin haldi því aðeins utan um upplýsingar um hvar tilteknar upplýsingar er að finna og geti því ekki verið grundvöllur tölfræðilegrar úrvinnslu um það hvernig fólk fer í gegnum opinber endurhæfingarferli sem iðulega spanni langt tímabil. Af þeirri ástæðu hafi verið talin þörf á að setja á laggirnar sérstaka miðlæga skrá með ópersónugreinanlegum upplýsingum til hliðar við þjónustugáttina þar sem unnið er með tölfræðiupplýsingar. Þá kemur fram að persónuauðkenni í gögnum verði dulkóðuð og vinnslan í samræmi við persónuvernd og reglugerð sem ráðherra setur um vinnslu persónuupplýsinga.
Í minnisblaði ráðuneytisins kom fram að ætlunin sé einungis að safna lýsigögnum í þjónustugáttina en ekki upplýsingunum sjálfum. Þannig verði ekki til nýr gagnagrunnur heldur gátt til að miðla upplýsingum á milli þeirra aðila sem þurfa á þeim að halda til að geta uppfyllt skyldur sínar. Með þeirri viðbót við lagaákvæði sem lögð væri til með a-lið 6. gr. frumvarpsins sé því ekki ætlunin að hverfa frá því fyrirkomulagi sem tilgreint er í 28. gr. núgildandi laga heldur sé ætlunin að skýra ákvæðið með því að tilgreina hvaða aðilar það eru sem gera upplýsingar aðgengilegar í gegnum þjónustugátt.
Þá segir í minnisblaðinu að það sé tilgangur skrárinnar að afla þekkingar um þá þjónustu sem veitt er af þjónustuaðilum eða í umboði þeirra og árangur þjónustunnar sem nýtt verður til að stuðla að gæðaþróun og leggja grundvöll að gagnadrifinni stefnumótun á sviði endurhæfingar. Ráðuneytið telur nauðsynlegt að Tryggingastofnun verði í þessu skyni gert heimilt að taka á móti persónugreinanlegum gögnum og slík vinnsla sé forsenda þess að unnt sé að rekja þjónustuferli einstaklinga á milli þjónustuaðila, meta samfellu, greina endurkomur og meta árangur úrræða. Þá er ítrekað að persónuauðkenni í gögnum verði, eins og áður sagði, dulkóðuð og vinnsla upplýsinganna verði í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir því að sami dulkóðunarlykill verði notaður fyrir hvern einstakling og afkóðun verði óheimil.
Meiri hlutinn telur ljóst af skýringum ráðuneytisins að ætlunin með a-lið 6. gr. frumvarpsins sé ekki að víkja frá fyrirkomulagi gáttarinnar skv. 8. mgr. 28. gr. laganna hvað varðar b-lið 6. gr. frumvarpsins. Telur meiri hlutinn að Tryggingastofnun verði að geta tekið á móti persónugreinanlegum gögnum til að geta sinnt því hlutverki sem stofnuninni er ætlað að sinna samkvæmt lögum. Telur meiri hlutinn þó vert að ítreka mikilvægi þess að kveðið verði skýrt og greinilega á um þau atriði sem máli skipta í reglugerð, svo sem hvernig fari með aðgangsstýringar að gáttinni, öryggi gagna, eftirlit með notkun gáttarinnar o.s.frv. Meiri hlutinn áréttar að gætt verði meðalhófs við þá útfærslu og aðeins nauðsynlegum upplýsingum verði safnað.
Þá er vikið að breytingum. Meiri hluti velferðarnefndar leggur til tvær breytingar á frumvarpinu. Að höfðu samráði við félags- og húsnæðismálaráðuneytið leggur meiri hlutinn til að fella brott 2. mgr. 12. gr. frumvarpsins um gildistöku 5. gr. frumvarpsins um hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyris. Ákvæðið kveður á um að 5. gr. frumvarpsins öðlist ekki gildi fyrr en 1. janúar 2026. Telur meiri hlutinn ákvæðið óþarft í ljósi bráðabirgðaákvæðis samkvæmt 10. gr. frumvarpsins þar sem gert er ráð fyrir að almennt frítekjumark skv. 5. gr. frumvarpsins hækki í skrefum og nái þeirri breytingu sem 5. gr. frumvarpsins kveður á um þegar bráðabirgðaákvæðið samkvæmt 10. gr. hafi runnið sitt skeið, þ.e. að liðnum árunum 2026 og 2027. Til einföldunar er þannig lagt til að 2. mgr. 12. gr. frumvarpsins falli brott. Fjárhæðir frítekjumarks fyrir árin 2026 og 2027 sem kveðið er á um í bráðabirgðaákvæði 10. gr. frumvarpsins eigi þá við þau ár og í kjölfarið fjárhæð samkvæmt 5. gr. frumvarpsins. Þá er lögð til ein orðalagsbreyting sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Grímur Grímsson, Jónína Björk Óskarsdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.
Virðulegur forseti. Þetta er ekki einfalt mál og almannatryggingakerfið er ekki einfalt kerfi. Ég held að ég geti svo sem bara talað fyrir sjálfa mig en ég verð bara að segja að ég hef átt fullt í fangi með að átta mig á öllu þessu. Sem betur fer höfum við fengið góða gesti og gögn og þetta er bara eitt af því sem þarf kannski að lesa tvisvar og þrisvar til þess að skilja. Ég hef heyrt að það séu svo sem ekkert endilega margir sem kunna þetta kerfi eins og lófann á sér. Þeir einstaklingar eru nú samt til og vinna þeir sennilega hjá Tryggingastofnun. Ég lagði áherslu á að þetta nefndarálit yrði mjög ítarlegt og tæki líka á þeim sjónarmiðum sem voru gegn meiri hlutanum. Mér finnst mikilvægt að það komi fram að þetta er umdeilt mál. Þarna finnst mörgum verið að sóa miklu fjármagni til jafnvel þeirra sem þurfa ekki á því að halda, þannig að það er bara mjög mikilvægt að það sjónarmið komi hér fram. Þó svo að okkur í ríkisstjórnarflokkunum finnist þetta mjög gott mál og við viljum gera þetta svona — það hefur verið tekið til fjármagn til þess að gera þetta svona, þetta er eitt af grunnmálum ríkisstjórnarinnar frá upphafi — þá eru engu að síður mikil mótmæli við því hvernig þetta er gert af hálfu margra annarra hér í þingsal og annarra stjórnmálaflokka. Það ber að virða og mér finnst mikilvægt að tala um það. Þetta snýst í rauninni samt í grundvallaratriðum um það og verið að mæla fyrir því hér að almennt frítekjumark ellilífeyris skuli hækka í skrefum, þetta sé gert í skrefum næstu þrjú árin þannig að það nær tvöfaldist á þessu kjörtímabili. Þetta þykir okkur mikilvægt skref í þá átt að tryggja eldri borgurum mannsæmandi framfærslu og áhyggjulaust ævikvöld sem er eitt af grunnatriðum alla vega okkar í Flokki fólksins og hefur verið það frá upphafi stofnunar flokksins og núna ríkisstjórnarflokkanna. Hækkunin nær til allra tekna eldri borgara annarra en atvinnutekna og hækkun frítekjumarks mun skila tekjuaukningu til mikils meiri hluta eldra fólks.
Síðan er það þessi aldursviðbót vegna örorku, að hún haldist ævilangt. Það þýðir að þeir ellilífeyrisþegar sem eiga engin eða mjög takmörkuð lífeyrisréttindi vegna þess að þeir voru ungir metnir til örorku munu áfram njóta aldursviðbótarinnar. Hér er þá verið að styrkja fjárhagslega stöðu eldra fólks.
Að lokum er lagt til að Tryggingastofnun starfræki upplýsingakerfi samhæfingar teyma í þeim tilgangi að skipuleggja fyrirtöku og afgreiðslu mála. Persónuvernd skilaði okkur gríðarlega ítarlegri umsögn um nákvæmlega þetta.
Frumvarpið er í samræmi við stjórnarskrá lýðveldisins, svo það sé sagt, og alþjóðlegar skuldbindingar á sviði félagslegra réttinda. Það eru náttúrlega öll gögn á vefnum og ég bendi bara fólki á það ef það vill lesa það nánar en hægt er að komast yfir hér á þessum tíma. En kostnaðurinn við þetta er talsverður. Við erum að tala um aldursviðbótina upp á 300 milljónir á ári og frítekjumarkið 1 milljarð í ár og sirka 5 milljarða með öllum þrepum. Þetta er há tala en þetta er eitthvað sem þessi ríkisstjórn hefur kosið að taka fjármagn í og tryggja að þetta nái fram að ganga. Um þetta má lesa í fjármálaáætlun og þið hafið sennilega öll meira og minna lúslesið hana.
Ég held að ég hafi þetta ekki lengra. Ég skal reyna að svara spurningum en eins og ég segi, ég er eins og þið og við í velferðarnefnd sem sitjum hérna, held ég, bara flest hver, með sömu upplýsingar og ættum að vera svona álíka, búin að heyra frá öllum þessum aðilum og lesa þessi gögn. Ég vil líka þakka nefndinni fyrir gott samstarf í gegnum þetta mál og önnur mál og hlakka bara til að halda áfram að vinna með velferðarnefnd að öðrum mikilvægum málum fyrir okkar góða land og þjóð.