157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[21:49]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna en ég verð að viðurkenna, frú forseti, að nú er mér mikill vandi á höndum því að mér fannst þessi ræða eiginlega fullvissa mig um það að hér þurfi mögulega að stoppa og vinna hlutina betur. Mælt var fyrir þessu máli 20. nóvember síðastliðinn og ég sé það á vef þingsins að hæstv. ráðherra talaði í einhverjar sex mínútur og það fór enginn í andsvör og enginn flutti ræðu. Kannski vegna þess sem hv. þingmaður sagði hér að kerfið er jú flókið, almannatryggingakerfið. Á síðasta kjörtímabili var farið í gagngerar breytingar á þessu kerfi, algjörar breytingar á kerfinu. Það var ekki unnið með annarri hendi, það var unnið á borði nokkurra ráðherra og starfshópa og einmitt sérfræðinganna sem hv. þingmaður vísar í sem kunna á þetta kerfi. Ég veit ekki, en ég óttast að hér séum við eitthvað að fara út af sporinu.

Virðulegur forseti. Þegar ég reyni að renna hér yfir nefndarálitið og umsagnirnar þá hnýt ég fyrir það fyrsta um það að bæði Samtök atvinnulífsins og ASÍ gagnrýna í umsögnum sínum til þingsins samráðskaflann í frumvarpinu sjálfu vegna þess að þegar samráðskaflinn í frumvarpinu er lesinn er bara sagt að það hafi komið einhver sjónarmið fram en ekkert um hver þau voru eða hvort reynt var að mæta þeim með neinum hætti.

Virðulegur forseti. Ég hef lært það sem þingmaður að ef maður les umsagnir frá SA og ASÍ og þau eru sammála um eitthvað, þá er eins gott að hlusta. Báðir þessir aðilar telja einmitt að þetta sé ekki rétta leiðin til að ná fram umræddum markmiðum og reyndar tekur BSRB líka undir þau sjónarmið. Þannig að, virðulegur forseti, nú verð ég að biðja hv. þingmann um að reyna að sannfæra mig um að hér sé peningum vel varið og að þeir séu raunverulega að skila sér til þeirra sem mest þurfa á þeim að halda og að við séum ekki að fara út af sporinu í þeim kerfisbreytingum sem við erum nýbúin að samþykkja.