almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Ég vil bara segja að við höfum náttúrlega mjög mikla trú á þessu máli og teljum að með þessu sé virkilega verið að stíga gott skref til að bæta hag þessara einstaklinga og hópa eins og kom fram í minni ræðu. Nú situr hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir ekki í velferðarnefnd og ég veit ekki, kannski er það upplifun fleiri úr velferðarnefnd að það hafi eitthvað verið farið hratt yfir sögu. En það er aldeilis ekki alla vega mín upplifun. Við fengum til okkar hæfustu sérfræðinga úr þessum geira og það oftar en einu sinni. Það er alveg rétt, eins og fram kom, að umsagnirnar voru ekki allar jákvæðar en frumvarpið byggist á fyrri samþykktum, byggist á faglegri greiningu og víðtæku samráði eins og sú sem hér stendur upplifir það alla vega og ég held að ég sé að tala fyrir hönd okkar í meiri hlutanum. Það var tekið á öllum helstu sjónarmiðum sem komu fram í umsögnum, einkum um persónuvernd, kostnað og markmið aldursviðbótarinnar, það var náttúrlega t.d. ítrekað spurt um það. Það hefur alveg komið fram í gagnrýni að kannski sé ekki verið að verja fjármagni nógu vel vegna þess að þarna séu inn á milli einstaklingar sem mögulega þurfi ekki á þessum krónum að halda, en við erum að bæta hag þúsunda eldri borgara, tryggja réttindi öryrkja og styrkja gagnadrifna stefnumótun í heilbrigðis- og endurhæfingarkerfinu. Heildarniðurstaðan er því einfaldlega réttlát, hún er framkvæmanleg og er samfélagslega ábyrg lagabreyting, viljum við meina í meiri hlutanum. Við værum annars ekki að leggja þetta fram. Ég veit ekki hvort ég geti svarað þessu eitthvað betur, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir.