almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið, en nei, því miður er ekki búið að sannfæra mig um þessa þætti. Það er rétt að ég sit ekki í velferðarnefnd og þess vegna sem þingmaður þarf maður svolítið að reyna að lesa sig í gegnum þessi skjöl sem hér liggja fyrir. Hv. þingmaður talaði um að þetta byggðist á greiningum og djúpu samráði, ég held að ég sé að hafa rétt eftir, og að þetta væru gagnadrifnar ákvarðanir. En fyrirgefið, það er einmitt það sem segir hér í umsögnum frá þessum atvinnuumsagnaraðilum, ég er ekki bara að tala um einhverja úti í bæ, ég er að tala um bæði SA og ASÍ, að það vanti einmitt að greina frekar gögn. Það skorti að greina það hvort hér sé peningum vel varið, hvort verið sé raunverulega að ná þeim markmiðum sem ég veit að hv. þingmaður hefur og hennar flokkur og ég dáist að því. Ég dáist að því en mér finnst skipta máli hvernig farið er með ríkisfé og þegar hér er verið að hækka útgjöld um 143 milljarða milli ára og hækka skatta stöðugt, bæði á fólk og fyrirtæki, þá hljótum við að þurfa að spyrja gagnrýninna spurninga.
Virðulegur forseti. Hvaða greiningar liggja hér undir? Ég get ekki betur séð en að í umsögnum frá Samtökum atvinnulífsins og BSRB segi einmitt að stjórnvöld þurfi að leggjast í betri greiningar og afla tölfræðiupplýsinga svo hægt verði að meta hver besta leiðin til þess væri. Eru það þá einhver gögn sem hv. þingmaður hefur og mögulega nefndin hefur sem lágu ekki fyrir þegar þessir umsagnaraðilar skrifuðu sína umsögn?
Virðulegur forseti. Svo verð ég bara að geta þess vegna þess að ég var í velferðarnefnd á síðasta kjörtímabili þegar við gerðum þessa umfangsmiklu breytingu á kerfinu. Hún tók langan tíma og það tók langan tíma fyrir þá sem hér stendur að átta sig á því og ekki ætla ég að þykjast skilja kerfið út í ystu æsar. Ég ætla ekki að reyna að halda því fram, en einmitt þetta, gagnadrifnar ákvarðanir, ég sé það ekki hér. Getur hv. þingmaður sannfært mig um að svo sé?