almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir samstarfið í velferðarnefnd í þessu máli sem er náttúrlega býsna stórt. Áætluð útgjöld samkvæmt frumvarpinu eru 5,9 milljarðar kr., 5,6 í hækkun þessa almenna frítekjumarks. Fjárhæðirnar sem við erum að tala um eru því býsna stórar, sérstaklega ef maður setur þær í samhengi við áætlaðan halla á fjárlögum á rekstri ríkisins á næsta ári, 28 milljarða. Þetta er stór biti í ríkiskökunni. Það er hlutverk okkar sem förum hér með fjárveitingavaldið að gæta að því að fjármunum sé vel varið og að við forgangsröðum verkefnum eins og þarf. Þá hnýtur maður auðvitað um umfjöllun frumvarpsins um tilefni og nauðsyn lagasetningar. Þar er nákvæmlega ekkert um hver nauðsyn lagasetningarinnar er, hvert hið eiginlega tilefni til að fara í þetta verkefni er. Því hefur verið borið við að þetta sé liður í því að vinna gegn fátækt og lyfta tekjulægsta hópnum. Þá komum við einmitt akkúrat að vandamálinu. Aðgerðin er svo ómarkviss að hún hittir ekki akkúrat fátækasta hópinn, tekjulægstu einstaklingana, heldur fer þriðjungur úr kostnaði frumvarpsins, 1,7 milljarðar, í þrjár efstu tekjutíundirnar. Þá vil ég spyrja hv. þingmann um markmiðið og hvort hún telji að þetta séu markvissar aðgerðir til að ná því markmiði sem að er stefnt. Ég mun kannski bæta við í seinna andsvari mínu.