157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[22:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir hans andsvar og þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar andsvör áðan. Ég bara gleymdi að þakka henni áðan í ákafa mínum í þessu máli. Já, við teljum þetta vera mjög markvisst en það hefur komið fram sú gagnrýni einmitt að hækkunin gagnist ekki tekjulægstu hópunum. Það er vissulega viðkvæmt að heyra það akkúrat í máli sem er ætlað að gera þveröfugt. En ég vil aftur benda á að frítekjumarkið er að hækka í skrefum. Ég ætla ekki að fara alveg ofan í þær tölur aftur, en aðeins um 3% ellilífeyrisþega eru undir núverandi frítekjumörkum og hafa ekki ávinning, þannig að það kann að vera að þarna séu — jú, það er rétt, en þetta er bara brot. Heildin er svo yfirgnæfandi, akkúrat að ná þessu markmiði og að fara að tína þetta eitthvað öðruvísi til hefði bara hvorki verið rétt né gott. Meiri hluti fær raunverulegan ávinning og gott betur. Í ofanálag styrkir þetta líka hvata til atvinnuþátttöku og tekjuöflunar án þess að skerða almannatryggingar. Þetta tryggir jöfnuð. Það viljum við gera í þessari ríkisstjórn, tryggir jöfnuð milli þeirra sem eru með aðrar tekjur og þeirra sem ekki eru með aðrar tekjur. Svo auðvitað horfum við til þess að þetta er fyrsta mikilvæga skrefið til að bæta stöðu tekjulægstu hópanna og það þurfa að koma fleiri skref, alveg klárlega, en það þarf einhvers staðar að byrja og þessi skref eða þrep skipta máli líka vegna þess að þarna eru nokkrir milljarðar undir. Þetta þarf að koma hægt.