157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[22:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir hans seinna andsvar. Ég átta mig ekki alveg á þessu orðalagi hv. þingmanns, að við séum að eyða peningum sem við eigum ekki. Hér kom til valda ný ríkisstjórn kosin af fólkinu í landinu með sínar pólitísku áherslur og baráttumál, og leggur línurnar fyrir hvernig hún vill skipta þessari köku á eins réttlátan hátt og hægt er út frá þessum pólitísku sjónarmiðum. Ég geri mér alveg grein fyrir að ef það væru sömu ríkisstjórnarflokkarnir og á síðasta kjörtímabili, svo við tökum bara dæmi um eitthvað, þá hefðu þeir sennilega skipt þessari köku allt, allt öðruvísi. Ég veit ekkert hvort þeir hefðu þá ekki eytt peningum sem þeir eiga ekki í eitthvað. Ég get hins vegar vel skilið að þingmaðurinn sé með allt aðra pólitíska sannfæringu en þeir flokkar sem nú eru í ríkisstjórn og myndu forgangsraða fjármagninu með öðrum hætti. Það skil ég mjög vel. Það hef ég séð í gegnum tíðina með því að fylgjast með störfum hér á Alþingi.

Þetta er tvíþætt. Megintilgangurinn er tvíþættur, annars vegar að bæta kjör ellilífeyrisþega með hækkun frítekjumarks og hins vegar að tryggja áframhaldandi rétt til aldursviðbótar. Ef ég fæ bara aðeins að horfa á það, jú, þetta er kostnaðarsöm breyting en það er verið að jafna. Þetta er jöfnunartæki vegna þess að við teljum að það sé ójafnræði milli hópa. Þetta er okkar pólitíska sannfæring, þessara flokka. Við viljum gera þetta svona. Markmiðið er að tryggja, ef ég fæ bara að horfa á þetta með aldursviðbótina, (Forseti hringir.) að þeir sem hafa aldrei haft fullt tækifæri til að byggja upp lífeyrissjóðsréttindi haldi áfram að (Forseti hringir.) fá sambærilegan stuðning eftir 67 ára aldur, sem kostar jú, en þetta er sanngirnismál. (Forseti hringir.) Ég kemst víst ekki lengra hér.