157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[22:08]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég sit í hv. velferðarnefnd og hef tekið þátt í meðferð þessa máls þennan skamma tíma sem málið hefur verið til umfjöllunar þar. Ég verð að fá að gera athugasemdir við — kannski ekki svo mikið meðferð málsins í nefndinni vegna þess að ég held að það hafi verið ágætar umræður þar og upplýsingar sem fram komu við meðferð málsins og ég þakka hv. framsögumanni fyrir samstarfið að því leyti. En það er einmitt vegna hinnar þinglegu meðferðar í þessari nefnd sem ég geri athugasemdir við málið sjálft. Það er einmitt eðli þinglegrar meðferðar og ætlan hennar að draga fram einhverja galla á málinu og vissulega hefur hin þinglega meðferð varpað ljósi einmitt á hversu vanbúið þetta mál er, því miður, eins og mörg önnur mál sem hafa komið fyrir hv. velferðarnefnd að mínu mati.

Það er til fyrst að telja í frumvarpinu sjálfu að þar er blandað saman a.m.k. þremur markmiðum ólíkum markmiðum. Hér er blandað saman málefnum sem eiga erindi við öryrkja. Annað markmiðið er hækkun frítekjumarks sem á við aldraða. Svo er þriðja markmiðið, tilgangur þessa frumvarps, að leggja niður stjórn í Tryggingastofnun. Hvert og eitt þessara mála hefði verðskuldað sérfrumvarp. Ég hefði talið miklu betur fara á því að það væri lagt fram sérstakt frumvarp um aldursuppbótina og sérstakt frumvarp um frítekjumarkið a.m.k. og í rauninni líka, hafi menn í hyggju að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar, þá eigi menn að gera það bara með einu sérstöku frumvarpi. Ég segi þetta vegna þess að í fyrsta lagi eru þetta eðlisólík mál og menn hafa nú verið að kalla eftir því margoft að vera ekki alltaf að spyrða þessum tveimur hópum saman, öryrkjum og öldruðum. Það eru svo ólíkir hagsmunir sem þessir hópar hafa og þarfir þeirra líka þegar kemur að réttindum og skyldum, a.m.k. í lagasetningu. Ég geri athugasemdir við þetta og mun við atkvæðagreiðslu í þessu máli a.m.k. kalla eftir því að það verði greidd atkvæði sérstaklega um þessi mál vegna þess að ég geri í sjálfu sér ekki ágreining um þessa breytingu sem lýtur að aldursviðbótinni þótt ég taki það aftur fram hvað það varðar að þá hefði svo gjarnan mátt fjalla meira um það úrræði í greinargerð.

Hér hefur komið fram hjá hv. framsögumanni, og ég þakka henni fyrir að viðurkenna vanmátt sinn þegar kemur að umfjöllun um þessi mál, og ég get tekið undir það með henni að það er ekki fyrir alla nema kannski innvígða kerfisfræðinga að þekkja hvernig þetta kerfi okkar virkar. Almannatryggingakerfið, velferðarkerfið okkar, þetta öryggisnet eins og það hefur þróast og stækkað svo mjög að umfangi að þá er það orðið of flókið fyrir aðra en einhvers konar sérfræðinga að setja sig inn í þetta og fjalla um það með skömmum fyrirvara a.m.k. Það er ekki óyfirstíganlegt að setja sig inn í þessi mál en menn þurfa auðvitað að fá tíma til þess og það er einmitt þess vegna sem maður kallar eftir ríflegum tíma í þinglegri meðferð um þessi mál. Það er nýtekið í gildi nýtt kerfi almannatrygginga, nýtt kerfi sem fjallar um örorkubætur og greiðslu bóta. Það er svona að slípast. Ég held að menn séu að læra eitthvað af því og að mörgu leyti kann það að vera til einföldunar. Ég get reyndar ekki einu sinni enn þá fullyrt hvort það sé til einföldunar. Það er a.m.k. eitthvað búið að hræra í þessu kerfi og markmiðið held ég að hafi verið að einfalda það. Ég hefði líka talið að það mætti aðeins leyfa því að þróast og fá einhverja reynslu á það. En allt að einu: Ég ætla ekki að fjalla sérstaklega um þessa aldursviðbót, eins og hún er kölluð, heldur bara að nefna að það hefði mátt fjalla sérstaklega um það í greinargerðinni.

Þá kem ég hins vegar að hinu, stóra málinu sem er — ég kannski vík aðeins að stjórn Tryggingastofnunar. Það er algerlega órökstutt hér af hverju menn vilji endilega leggja niður stjórn Tryggingastofnunar. Einhverjir ágætir umsagnaraðilar hjá Viðskiptaráði Íslands, vinir mínir, fögnuðu þessari breytingu og telja þetta til marks um að hér sé verið að leggja niður og minnka báknið og þess háttar og ég skil þeirra tilhneigingu til að fagna slíkri breytingu. Það er líka bent á það að hlutverk stjórnar Tryggingastofnunar sé óljóst og hún hafi í rauninni engin völd og þar fram eftir götunum. Ég get kannski í sjálfu sér alveg tekið undir það. Einhverjir nefndu kostnað, þetta væri aukakostnaður, og það væri hluti af aðhaldinu hjá ríkisstjórninni að leggja niður þessa stjórn. Ég hins vegar bendi á það að kostnaður upp á einhverja tugi milljóna getur ekki verið rök í þessu máli ef það þarf að borga einhverjum stjórnarmönnum til fyrir það að sitja í stjórn stofnunar sem veltir a.m.k. 200 milljörðum, ég man nú ekki alveg tölurnar, þá er þetta ekki hlutur sem menn geta sett fyrir sig. Ég tel hins vegar að það sé tilefni til þess að skerpa á skyldum og hlutverki stjórnar í stofnun eins og Tryggingastofnun. Við höfum dæmi, eina dæmið sem ég man eftir í fljótu bragði, þar sem var tekin ákvörðun um að fella niður stjórn í ríkisapparati og það er ÁTVR, Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, þar sem stjórnin var felld niður fyrir nokkrum árum af því að það þótti einhvern veginn þægilegt. Ráðherra myndi bara hafa yfirumsjón með þessari stofnun og hann gæti bara alveg stýrt því og fólkið í ráðuneytinu.

Hvað hefur gerst? Ja, ég hef a.m.k. átt orðastað við núverandi hæstv. fjármálaráðherra og spurt hann út í rekstur ÁTVR sem hefur undanfarið stangast á við lög og um það hafa fallið dómar, ekki bara í undirrétti heldur í Hæstarétti, þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að vinnubrögð þar á bæ hafi ekki verið í samræmi við lög. Þegar hæstv. fjármálaráðherra er spurður um þetta og hvernig gangi að koma málunum í rétt horf þá var svarið í grófum dráttum þetta: Þetta er bara innanhússmál hjá þessari stofnun. Það er engin ábyrgð tekin af hálfu ráðherrans sem hvers embætti, ekki núverandi hæstv. ráðherra en þó það embætti, lagði niður stjórnina; það er engin ábyrgð tekin á rekstrinum. Ég vara við því að stofnun eins og Tryggingastofnun með yfirstjórn, venjulega stjórn, að menn bindi einhverjar væntingar við það að ráðuneytið hafi burði til þess eða að það sé praktískt og hagkvæmt að fela slíka yfirstjórn einhverjum embættismönnum í ráðuneytum. Ég kalla eftir, og ég hef kallað eftir, því að menn skýri í greinargerð hvert markmiðið með þessu er og hvernig menn sjá þetta fyrir sér. Þetta er það sem ég vildi hafa um þetta.

Stærsta málið í þessu er auðvitað hækkun frítekjumarksins. Þar er greinargerðin, ég verð að segja, virðulegur forseti, í rauninni ekki boðleg þegar kemur að þessum háu útgjöldum sem þessi tillaga kveður á um, 5,8 milljarðar, eitthvað svoleiðis, á ári. Þetta er breyting þar sem er ekki einu sinni fjallað um hver tilgangurinn sé í greinargerð, hvert markmiðið er. Það eina sem er nefnt er að þetta er bara kemur fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að á kjörtímabilinu verði bundið í lög að almennt frítekjumark ellilífeyris hækki í skrefum upp í 60.000 kr. á mánuði. Það er bara af því að menn ákváðu það. Af hverju ákváðu menn það? Af hverju vilja menn hækka? Það kunna að vera góð rök fyrir því en þau rök eiga að koma fram í greinargerðinni. Er markmiðið að grípa fátækasta fólkið? Er markmiðið að grípa okkar minnstu bræður? Er markmiðið að leyfa öldruðum að vinna meira og þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu? Hvert er markmiðið með þessu? Það er ekkert útskýrt. Meginefni frumvarpsins, mat á áhrifum, er nokkrar línur. Þá kem ég kannski að þessari meðferð í nefndinni sem var, eins og ég sagði, mjög upplýsandi. Við fengum góð svör og góðar skýringar á því sem nefndarmönnum datt í hug þann daginn þá þegar þessir gestir komu, m.a. frá félagsmálaráðuneytinu, og ljóst að þar á bæ eru margir sem þekkja þetta kerfi eða a.m.k. einhverjir starfsmenn sem þekkja þetta kerfi út og inn og gátu svarað þeim spurningum sem upp komu. Þess þá heldur, og eftir því var kallað af hálfu minni hlutans í nefndinni, að það yrði skilað inn upplýsingum og aukaminnisblöðum frá félagsmálaráðuneytinu og það var gert. Það liggja fyrir í gögnum málsins hérna tvö minnisblöð þar sem aðeins er farið yfir hérna og sett á blað sumt af því sem var rætt á nefndarfundum, allt upplýsingar sem ég bara furða mig á að séu ekki inni í þessari greinargerð. Það er kvartað yfir því og meira að segja hv. framsögumaður málsins kvartar yfir því að skilja ekkert í þessu kerfi. Hvað halda menn þá um aðra úti í þjóðfélaginu? Hvað halda menn um þá sem eru nú andlag þessara lagabreytinga, aldraðir og öryrkjar eftir atvikum, en ég er að tala um frítekjumark aldraðra; ætli það sé einhver ofgnótt af upplýsingum um þetta kerfi sem aldraðir sækja í? Hversu oft heyrir maður algeran misskilning af hálfu aldraðra sem eru að þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu og bætur úr alls kyns lífeyrissjóðum og séreignasjóðum, alls kyns misskilning um þeirra eigin réttindi. Oft er það nú þannig, og það kemur á óvart, að maður hittir fólk sem er 69,5 ára og það hefur ekki hugmynd um hvaða réttindi það hefur í þessum sjóðum, það hefur ekki hugmynd um hvað tekur við eftir eitt ár þegar það hættir að vinna. Þingið á ekki að ala á slíku sinnuleysi um réttindi sín og skyldur í þessu kerfi og velferðarkerfinu almennt með því að afgreiða frá þingi frumvörp til laga sem fjalla ekkert um þessi flóknu kerfi; þar sem ekki er gerð tilraun til þess að útskýra fyrir fólki hvað um ræðir.

Þetta mál, eins og ég segi, vantar markmið. Hér kemur hv. framsögumaður og nefnir auðvitað stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og hún segir sjálf að hún trúi því að hún sé að bæta hag einhvers fólks, aldraðra. Það er ekki nóg að finnast maður vera að gera það. Það þarf líka að setja það í samhengi við margt annað. Það kemur fram í gögnum, einu af þessum minnisblöðum frá félagsmálaráðuneytinu, að það eru sirka 3% viðskiptavina Tryggingastofnunar sem eru að þiggja ellilífeyri frá almannatryggingum en svona 3% þeirra sem ekki munu njóta þessara réttinda sem frumvarpið býður upp á, þ.e. hækkunina, þar sem þeir eru undir tekjumörkum. Þetta úrræði er orðið bara mjög almennt. Það eru einhverjir sem fagna því; Samtök lífeyrissjóða fagna þessu framtaki og ég held að það sé vegna þess að lífeyrissjóðirnir verða fyrir miklu ámæli. Það eru þeir sem þurfa oftast að svara öldruðum um þessar spurningar, af hverju menn séu að borga í lífeyrissjóði úr því að maðurinn við hliðina á þeim sem hefur aldrei borgað í lífeyrissjóði endar uppi með sömu ráðstöfunartekjur, þetta eru spurningarnar. Lífeyrissjóðunum er kennt um og þeir eru orðnir hundleiðir á að þurfa að svara þessu og standa skil á þessu. Svo er það líka þannig að það eru einhverjir sem falla milli skips og bryggju, eins og sagt er, þegar kemur að réttindum í lífeyrissjóði. Það eru einstaklingar sem eiga lítil réttindi enn sem komið er, einkum kannski eldri konur og háaldraðar nú og kannski verktakar eða aðrir sem hafa kannski ekki hirt um að leggja í lífeyrissjóði og eiga lítil réttindi í lífeyrissjóði. Einhvern tímann tekur það nú vonandi enda og öll erum við með rífleg réttindi í lífeyrissjóðum, jafnvel séreignarsjóðum líka.

Umfjöllun um þetta, hvernig þróunin verður og hvernig stjórnvöld sjá fyrir sér framhaldið, vantar í þetta frumvarp. Það er rétt sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, sem situr nú á forsetastóli, benti á; umræða hér við framsögu málsins var engin og á því berum við þingmenn auðvitað allir ábyrgð. Ég verð hins vegar að segja, virðulegur forseti, að þar var kannski erfitt að átta sig á málinu eins og það lá fyrir og liggur fyrir í frumvarpinu. Það er ekkert útskýrt í frumvarpinu hvert markmiðið er og hvernig menn sjá fyrir sér að þessi hækkun á frítekjumarkinu þróist. Við skulum ekki gleyma því, bara svo að það sé bókað í þessa umræðu, að hér erum við að tala um frítekjumark, þ.e. þær tekjur sem menn hafa, þeir sem þiggja bætur úr almannatryggingakerfinu, ellilífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins, sem eru bætur, að þær skerðist ekki þótt menn hafi aðrar tekjur og þá skiptir ekki máli hvort það eru væntanlega atvinnutekjur eða fjármagnstekjur eða hvað það er. Mig minnir reyndar, það gæti hafa skolast til hjá mér. Það er hins vegar þannig í dag að tekjur úr séreignarsjóðum skerða ekki almannatryggingar. Menn skyldu hafa það í huga í þessu sambandi. Eftir einhverja skoðun, af því að það kom til umræðu í nefndinni, þá fæ ég ekki betur séð en að það sé þannig að menn geti frestað töku lífeyris úr samtryggingahluta lífeyrissjóðakerfisins en tekið samt út tekjur úr séreignarsjóði. Það er hægt að þiggja bara tekjur úr séreignarsjóði og mögulega taka þá samhliða bætur frá almannatryggingakerfinu. Ég veit ekki hversu algengt það er en þetta er hægt að stilla af með ýmsum hætti í kerfinu eins og það er í dag.

Virðulegur forseti. Ég vildi bara árétta að mér finnst málið ótækt. Ég tek undir athugasemdir ASÍ og Samtaka atvinnulífsins um að þetta sé býsna almennt og í rauninni of almenn aðgerð sem gagnist ekki endilega þeim verst stöddu. Hafandi það í huga líka, því ég vil árétta það, að þessi áhrif — þetta eru 5,6 milljarðar á ári þegar þetta er að fullu komið fram. Það er bara býsna há fjárhæð. Hér hafa mál runnið í gegn. Áhersla ríkisstjórnarinnar virðist vera mjög mikil einhvern veginn á að gera allt fyrir alla. En gleymum því ekki að þessir 5,6 milljarðar á ári eru skattahækkun framtíðarinnar. Þetta eru skattar á vinnandi fólk í dag og unga fólkið okkar sem er ekki komið inn á vinnumarkaðinn.

Svo vil ég í lokin vekja athygli á því að ég furða mig á breytingartillögunni sem fellir út 2. mgr. 12. gr. Ég ætti kannski ekki að gera það vegna þess að ég átta mig ekki á hvernig menn ætla að ná 720 þúsundum árið 2028 án þess að hafa þessa grein inni en styðjast bara við bráðabirgðaákvæði sem fjallar bara um árin 2006 og 2027. En það er annað mál. Kannski er það með ráðum gert þannig að menn losni við hina miklu hækkun sem á að verða 2027.