157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.

269. mál
[22:28]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu hér. Eitt sem ég vil byrja á að fara yfir er varðandi það að hefja töku ellilífeyris sem heimilt er að gera frá Tryggingastofnun eða almannatryggingum frá 65 ára aldri. Almenna reglan er 67 ára en þá er krafa hins vegar um að hefja töku eða sækja um í öllum lífeyrissjóðum á sama tíma, þannig að það er ekki hægt að fresta töku úr lífeyrissjóðum, samtryggingunni, ef sótt er um í almannatryggingakerfinu. Það er ágætt að hafa það í huga. Það er rétt, eins og hv. þingmaður kom inn á, varðandi séreignarsparnaðinn; hann skerðir ekki aðrar greiðslur úr almannatryggingum sem er auðvitað mikilvægt og gott fyrir fólk að nýta sér það og nota séreignarsparnaðinn til tekjujöfnunar þegar fram í sækir af því að það geta komið mánuðir þar sem fólk þarf meira. Þá er gott að nýta þann sparnað til að taka á svona sveiflum ef fólk hefur lagt í séreignarsparnað sem ég hvet alla til að gera af því að það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur.

Aðeins varðandi aldursviðbótina. Ég heyrði að hv. þingmaður ræddi hana aðeins og samspilið varðandi þá sem hafa það kannski allra síst í kerfinu. Nú er það þannig að aldursviðbótin greiðist til þeirra sem missa starfsgetuna snemma á lífsferlinum og eru þar af leiðandi ekki með mikil réttindi í lífeyrissjóðum og eru auðvitað þeir sem hafa það hvað verst. Ég náði ekki alveg afstöðu þingmannsins til þess að tryggja að aldursviðbótin gangi til allra sem hana fá greidda við upphaf ellilífeyris.