almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna af því að ég vil vera skýr um að ég styð það. Það er þess vegna sem ég hefði svo gjarnan viljað sjá sérstakt frumvarp um það, bæði til að maður gæti bara tekið afstöðu til þess máls sérstaklega en líka til að gefa færi á ítarlegri umfjöllun um það fyrirbæri sem aldursuppbótin er. Við fjölluðum um það í hv. velferðarnefnd, af því að þetta er útfært miðað við þetta frumvarp, að aldursviðbótin helst hjá þeim sem missa starfsgetuna ungir að árum en minnkar jafnt og þétt, þ.e. rétturinn til aldursviðbótar að 44 ára aldri, minnir mig; þeir sem missa starfsgetuna eftir 44 ára aldur eiga ekki rétt á aldursviðbót. Sjálfri fannst mér þetta kannski undarlegt en ég fékk, að mér fannst, málefnalegar og skilmerkilegar skýringar á því af hverju þessi skurðpunktur yrði 44 ára. Ég held að ég hafi ekkert verið að spyrja kjánalegrar spurningar sem ég spurði af hverju þetta væri 44 ára. Ég held að þetta sé spurning sem menn staldri við og hefði verið svo mikilvægt að fjalla um í greinargerð með svona máli, að útskýra þetta ferli nákvæmlega. Þetta tengist reyndar líka einhverjum breytingum sem hafa verið gerðar á þessu kerfi á undanförnum misserum og ég treysti þeim svörum sem ég fékk að þetta sé málefnalegt og bitni ekki illa á einhverjum sem þarna eiga undir.