almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er alveg rétt og það er ekki asnaleg spurning að spyrja út í þessi aldursmörk, af hverju þau eru við 44 ára aldurinn. Í einföldu máli sagt er það vegna þess að með breyttu kerfi er þetta ákveðinn punktur sem er horft til. Réttindi eru lítil fyrir þann tíma og þetta er kannski hópurinn sem er í verstu stöðunni.
Hinn þátturinn sem mig langaði síðan til að spyrja um líka er varðandi afstöðu til þess að fólk safni sér réttindum í lífeyrissjóði. Þegar lífeyriskerfið var sett á laggirnar hér á síðustu öld, 1969 eða í kringum 1970, var talað um þetta kerfi og þessar tvær stoðir, sem eru almannatryggingar og lífeyrissjóðirnir. Síðan kom þriðja stoðin inn 1997 þegar séreignarsparnaðurinn kom inn. Mikilvægi þess að fólk spari og safni fyrir lífeyri; mig langaði að fá aðeins endurspeglun á það frá þingmanninum hver afstaða hennar sé til þess að fólk sé að leggja fyrir í lífeyrissjóði og mikilvægi þess fyrir samfélagið, af því að ef lífeyrissjóðir og þau réttindi væru ekki til staðar þá værum við að fjármagna þann hluta alfarið. Breytingarnar sem við ræðum hér varðandi frítekjumarkið snúa einmitt að samspili þessara tveggja kerfa. Frítekjumarkið, sem við erum að færa með þessu frumvarpi, fer þá upp í 60.000 í lok þessa tímabils, 2028. Það dempar þessi áhrif í samspili á milli kerfanna. Mér finnst gríðarlega mikilvægt að við séum að stíga skref til að auka tiltrú á kerfinu í heild sinni og að fólk hafi það sem best á elliárunum.